Hvetja til aðgæslu í ferðum til og frá höfuðborgarsvæðinu
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar á Austurlandi hvetur þá sem ferð eiga á höfuðborgarsvæðið, eða koma þaðan, til að gæta sértaklega að sér.Eitt af fyrstu stóru verkunum að endurmeta fjárhagsstöðuna
Útlit er fyrir 320 milljónir vanti upp á áætlaðar tekjur Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar sem eftir helgi sameinast í nýtt sveitarfélag. Oddvitar nýmyndaðs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks segja sveitarfélagið hafa burði til að standa þetta högg af sér en þó verði að fara yfir allar áætlanir.Undirbúa móttöku togara þar sem skipverjar sýna Covid-einkenni
Starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Austurlands undirbýr sig þessa stundina um að taka á móti togara sem er á leið til Seyðisfjarðar þar sem skipverjar hafa fundið fyrir einkennum sem svipar til Covid-19.Fjórum bjargað úr bát við Papey
Fjórum einstaklingum var í kvöld bjargað úr litlum fiskibáti, en leki kom að bátnum eftir að hann tók niður á grynningu austur af Papey.Enginn úr áhöfn Gullvers með Covid-veiruna
Enginn skipverja Gullvers NS er með Covid-19 veiruna. Þeir voru allir skimaðir eftir komuna til Seyðisfjarðar í gærkvöldi eftir að fimm þeirra höfðu sýnt einkenni.Heita því að vinna að jafnréttismálum af heilum hug
Aðeins ein kona verður í meirihluta fyrstu sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Oddviti Sjálfstæðisflokks kveðst fagna umræðunni um jafnréttismál.Meirihlutasamkomulag undirritað rafrænt
Um sjötíu kílómetrar í loftlínu skildu að oddvita Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er þeir undirrituðu samkomulag um samstarf flokkanna í meirihluta í nýju sveitarfélagi á Austurlandi í dag. Uppbygging nýs leikskóla á Egilsstöðum er meðal þeirra verkefna sem meirihlutinn hyggist ýta úr vör á kjörtímabilinu.Vísindastarfsemi á Breiðdalsvík efld með aðkomu Háskóla Íslands
Stofnun rannsóknarsetra Háskóla Íslands hyggst koma á fót Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Breiðdalsvík á grunni starfsemi Breiðdalsseturs. Auglýst hefur verið eftir tveimur stafsmönnum með jarðvísindamenntun til starfa.Umferðarslysum fækkar áfram á Austurlandi
Skráð umferðarslys á Austurlandi eru einu færra fyrstu níu mánuði ársins en þau voru á sama tíma árið 2019. Skráð slys eru 20 en voru 21 í fyrra.