Umferðarslysum fækkar áfram á Austurlandi

Skráð umferðarslys á Austurlandi eru einu færra fyrstu níu mánuði ársins en þau voru á sama tíma árið 2019. Skráð slys eru 20 en voru 21 í fyrra.

 

Þetta kemur fram á vefsíðu lögreglunnar. Þar segir að þó litlu muni er um þróun í rétta átt að ræða með vísan til þess að allt árið 2019 voru fæst umferðarslys skráð á svæðinu frá árinu 2006. Meðalfjöldi slysa á því tímabili, frá 2006 til 2019, eru 62 slys en voru 36 í fyrra til samanburðar. Umferðarslys hafa annars aldrei verið færri á einu ári en 46 en það var árið 2011.

Haldi áfram sem horfir verða enn færri slys í fjórðungnum árið 2020 en þau voru í fyrra og þá færri en þau hafa verið frá árinu 2006.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.