Nýtt lag um faðmlög frá Guðmundi R.
Norðfirski söngvarinn Guðmundur R. hefur gefið út nýtt lag sem talar beint inn í okkar samtíma. Lagið heitir Svona er lífið og er fáanlegt á helstu streymisveitum s.s. Spotify og Apple music.Mengandi efni enn yfir mörkum í fráveitu MS á Egilsstöðum
Heilbrigðisnefnd Austurlands segir að enn sé magn mengandi efna í fráveitu yfir starfsleyfismörkum Mjólkursamsölunnar (MS) á Egilsstöðun. „Heilbrigðisnefnd fagnar þeim árangri sem náðst hefur í hreinsun fráveituvatns frá mjólkurstöðinni en bendir á að magn mengandi efna í frárennsli er þó enn yfir starfsleyfismörkum,“ segir í nýlegri fundargerð nefndarinnar.Þróar textíl og band úr iðnaðarhampi frá Berufirði
Hinn þekkti fatahönnuður Sigrún Halla Unnarsdóttir hefur hlotið styrk úr Hönnunarsjóði til að þróa textíl og band úr iðnaðarhampi. Hampinn fær hún m.a. frá Berufirði.Austurland í fararbroddi stafrænnar heilbrigðisþjónustu á Norðurlöndunum
Austurland er í fararbroddi í notkun stafrænna lausna samkvæmt nýrri norrænni rannsókn um fjarheilbrigðisþjónustu. Reynsla Austfirðinga getur orðið öðrum dreifbýlissvæðum á Norðurslóðum fordæmi.Vopnafjarðarhreppur hættir við að höfða dómsmál gegn Stapa lífeyrissjóði
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur ákveðið að falla frá fyrirhugaðri málsókn á hendur Stapa lífeyrissjóði vegna uppgjörs á vangreiddum lífeyrisgreiðslum á árunum 2005-2016. Málinu er þar með lokið af hálfu sveitarfélagsins.Smit kom upp í áhöfn Norrænu
Ráðstafanir hafa verið gerðar vegna komu Norrænu til Seyðisfjarðar í fyrramálið eftir að tveir meðlimir úr áhöfn skipsins greindust með Covid-19 veiruna. Ekki er þó talið að líkur séu á að þeir hafi smitað farþega.Verið að prufukeyra nýja frystiklefann hjá Eskju
Þessa dagana er verið að prufukeyra nýja frystiklefann hjá Eskju á Eskifirði. Jón Kjartansson SU kom í höfn með 800 tonn af síld í gærmorgun og var hún sett í klefann.Síld flæðir yfir kolmunnaslóðina
Uppsjávarskipin Beitir NK og Bjarni Ólafsson AK komu til Neskaupstaðar í gær og í morgun með síldar- og kolmunnaafla. Börkur NK er síðan væntanlegur í dag.
Heimasíða Múlaþings orðin aðgengileg
Heimasíða hins nýstofnaða sveitarfélags Múlaþings er nú orðin aðgengileg almenningi. Henni er ætlað að leysa af hólmi heimasíður sveitarfélaganna sem sameinuðust inní sveitarfélagið.Ræddu foreldragreiðslur sem valkost við leikskólavist
Á nýlegum fundi fræðslunefndar Fjarðabyggðar var rætt um foreldragreiðslur sem þriðja valmöguleika foreldra með 12 mánaða börn ef ekki væri möguleiki á leikskólaplássi eða dagforeldri.Varað við hálku á heiðum
Varað er við hálku á Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og Öxi nú í morgunsárið.