Orkumálinn 2024

Smit kom upp í áhöfn Norrænu

Ráðstafanir hafa verið gerðar vegna komu Norrænu til Seyðisfjarðar í fyrramálið eftir að tveir meðlimir úr áhöfn skipsins greindust með Covid-19 veiruna. Ekki er þó talið að líkur séu á að þeir hafi smitað farþega.

Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Þar kemur fram að smit hafi verið staðfest meðal starfsmannanna skömmu eftir að ferjan fór frá Hirtshals í Danmörku á laugardag.

Tvímenningarnir eru ekki með einkenni smits og ekki talin ástæða til að ætla að farþegar hafi smitast. Starfsmennirnir fóru strax í einangrun auk þess sem ellefu áhafnarmeðlimir fór í sóttkví. Fólkið fór allt frá borði við komu ferjunnar til Norrænu til Færeyja.

Að venju verða tekin sýni af öllum farþegum Norrænu við komuna til Seyðisfjarðar á morgun en þeir verða síðan í 5-6 daga sóttkví, eða þar til niðurstaða liggur fyrir úr seinni sýnatöku. Þetta er samkvæmt gildandi reglum og verklagi en sérstök aðgát verður þó viðhöfð í ljósi smitanna.

Allir áhafnarmeðlimir sem nú eru um borð í Norrænu voru skimaðir í Færeyjum. Enginn þeirra greindist með smit.

Enginn er með virkt smit á Austurlandi en fjórir einstaklingar eru í sóttkví. Á morgun taka gildi hertar reglur sem þýða að tveggja metra reglan gengur í gildi á ný fyrir landið allt. Þá skal nota grímu í verslunum, þar sem ekki er mögulegt að tryggja tveggja metra fjarlægð.

Reglurnar má lesa hér.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.