Aðgerðastjórn hvetur Austfirðinga til árvekni
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur íbúa til að halda vöku sinni í baráttunni gegn Covid-19 faraldrinum. Þótt staðan sé góð í augnablikinu geti hún breyst snarlega til hins verra.Skorað á ráðherra að koma á tvíbreiðri brú yfir Sléttuá
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar á samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að flýta gerð nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Sléttuá á Reyðarfirði. Brúin er umferðarmesta einbreiða brúin á þjóðvegi 1 á Austurlandi.Formlegar meirihlutaviðræður hafnar í nýju sveitarfélagi
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í nýju, sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi, hafa hafið formlegar viðræður um myndun meirihluta í nýrri sveitarstjórn.Gul veðurviðvörun fyrir Austurland í nótt
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austurland að Glettingi í nótt. Gildir viðvörunin frá því klukkan 22 í kvöld og til klukkan 11 á morgun.Meirihlutaviðræður halda áfram í dag
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks halda í dag áfram viðræðum um myndun meirihluta í nýju sveitarfélagi á Austurlandi. Oddviti Sjálfstæðisflokks segir viðræður ganga vel þótt þær séu skammt á veg komnar.
Hundslappadrífa á Austurlandi
Talsverð snjókoma hefur verið það sem af er morgni á Austurlandi og hún hefur haft áhrif á færð á vegum.Austurlistinn kallar eftir samstjórn í nýju sveitarfélagi
Oddviti Austurlistans segir Sjálfstæðisflokkinn hundsa vilja kjósenda í nýju, sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi með að hefja viðræður við Framsóknarflokkinn um myndun meirihluta. Austurlistinn telur rétt að látið hefði verið reyna á samstjórn allra framboða til að mæta stórum verkefnum sem framundan eru.Íbúar á Austurlandi hvattir til að taka þátt í íbúakönnun
Landshlutasamtök sveitarfélaga standa þessa dagana fyrir sameiginlegri íbúakönnun á Íslandi. Íbúar á Austurlandi eru hvattir til að taka þátt í könnuninni því að því fleiri sem taka þátt því betur er hægt að leggja mat á og vinna úr niðurstöðunum.Örfá handtök eftir við fyrstu plötu Senga‘s Choice
Norðfirðingarnir Jón Hilmar Kárason og Þorlákur Ægir Ágústsson eru mennirnir á bakvið hljómsveitina Senga‘s Choice sem á næstunni sendir frá sér breiðskífuna Ideas & Secrets. Sveitin spilar tónlist sem hljómsveitarmeðlimir skilgreina sem „Frog Prog.“Grafalvarleg staða hjá menningarmiðstöðinni Skaftfelli
Að öllu óbreyttu stefnir í að loka þurfi menningarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði í nóvember n.k. Fjárhagsvandræði eru ástæðan. Fjallað var um málið á síðasta fundi bæjarráðs. Í fundargerð kemur fram að staðan sé grafalvarleg.Aflaverðmæti makrílskipa 3 milljarðar króna hjá SVN
Aflaverðmæti makrílskipa hjá Síldarvinnslunni (SVN) nam rétt tæpum 3 milljörðum króna á þessari vertíð sem lauk nýlega.Þetta kemur fram á vefsíðu SVN. Þar segir að heildarkvóti íslenskra skipa á vertíðinni var 148.400 tonn og eru 18.900 tonn óveidd. Í fyrra nam makrílveiði Íslendinga 125.500 tonnum.