Yfir sextíu verkefni skráð hjá austfirskum björgunarsveitum
Yfir 60 verkefni hafa verið skráð hjá austfirskum björgunarsveitum vegna hvassviðris í fjórðungnum í dag. Flest útköllin eru á Norðfirði, Seyðisfirði og Djúpavogi.Líkur á rafmagnstruflunum í rokinu
Landsnet varar við að rafmagnstruflanir geti orðið á Austurlandi í miklu hvassviðri sem spáð er á svæðinu í kvöld og á morgun.Reyna að tryggja skriðusvæðið fyrir vindhvellinn
Verktakar sem vinna að hreinsun eftir skriðuföllin á Seyðisfirði hafa seinni partinn í dag reynt að takmarka fok á braki í skriðunni fyrir mikið norðvestan hvassviðri sem spáð er í nótt og fyrramálið. Ekki er talið að óveðrið skapi skriðuhættu á ný.Búið að loka fyrir umferð um hafnarsvæðið í Neskaupstað
Búið er að loka fyrir umferð um hafnarsvæði í Neskaupstað vegna óveðursins sem geysar þar. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar,
Björgunarsveitir um nær allt Austurland á eftir þakplötum
Björgunarsveitir af nær öllu Austurlandi hafa sinnt verkefnum í dag sem tengjast miklu hvassviðri sem gengur yfir fjórðunginn. Víða hefur þurft að glíma við þakplötur á ferðinni.Vilji til að endurbyggja Vélsmiðjuna - Myndir
Áhugi er á að endurbyggja Vélsmiðju Jóhanns Hanssonar, eitt helsta sýningarrými Tækniminjasafns Austurlands, en stór hluti hennar er ónýtur eftir að hafa orðið fyrir stóru skriðunni sem féll á Seyðisfjörð 18. desember. Merkir safnmunir eru ónýtir meðan aðrir virðast ótrúlega heillegir.Spá að vindur nái fellibylsstyrk á Austfjörðum
Veðurstofan hefur uppfært veðurviðvörun sína fyrir Austurland að Glettingi og Austfirði úr gulu í appelsínugult. Spáð er að vindur í hviðum á Austfjörðum fari yfir 45 m/s sem er fellibylsstyrkur.Nánast allar björgunarsveitir á Austurlandi að störfum
Nánast allar björgunarsveitir á svæðinu milli Þórshafnar og Djúpavogs hafa verið kallaðar út á einhverjum tímapunkti í dag vegna óveðurs. Fyrstu útköll bárust um klukkan 8:00 í morgun á Neskaupsstað og var þó nokkuð mikið af verkefnum á borði björgunarsveitarinnar þar fyrir hádegi.