Djúpavogsbúar slá eign sinni á nýjasta liðið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta
Heimurinn virðist varla nægja íbúum Djúpavogshrepps. Þeir hafa nýlega seilst svo langt að slá eign sinni á nýjasta liðið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, sem meira að segja kemur frá Wales.Uppskeruhátíð hjá Skíðafélaginu í Stafdal
Skíðafélagið í Stafdal er komið í sumarfrí. Vetrinum lauk með góðri ferð á Andrésar Andarleikana á Akureyri og að lokum uppskeruhátíð á Seyðisfirði.
Myndasyrpa: Austfirsku liðin deila efsta sætinu í annarri deild
Höttur og Fjarðabyggð unnu andstæðinga sína í annarri deild karla í dag bæði með fjögurra marka mun. Höttur er í efsta sæti deildarinnar því liðið hefur betra markahlutfall en Fjarðabyggð.
Höttur og Leiknir úr leik í bikarnum
Höttur og Leiknir Fáskrúðsfirði eru úr leik í bikarkeppni karla. Bæði liðin töpuðu 5-0 fyrir úrvalsdeildarliðum í sextán liða úrslitum í gær. Fjöldi leikja verður á Austurlandi um helgina.
Egilsstaðaskóli varð fimmti í Skólahreysti
Lið Egilsstaðaskóla, sem vann Austurlandsriðil Skólahreysti, varð í fimmta sæti í lokakeppninni sem fram fór í Laugardalshöll í seinustu viku.
Góður sigur Hattar í Njarðvík
Höttur er í öðru sæti annarrar deildar karla í knattspyrnu eftir 1-3 sigur á Njarðvík um seinustu helgi. Fjarðabyggð réttir úr kútnum eftir erfiða byrjun. Nóg verður um að vera hjá austfirskum knattspyrnuliðum næstu daga.
Sérdeildin sigraði í Bólholtsbikarnum
Lið Sérdeildarinnar fagnaði sigri í bikarkeppni UÍA og Bólholts í körfuknattleik eftir 54-53 sigur á Ásnum í úrslitaleik á sunnudag. Fjögur lið tóku þátt í úrslitakeppninni sem fram fór í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum.
Landskeppni í boccia: Ísland-Færeyjar
Í gær fóru fram vinabæjarleikar í boccia í íþróttahúsinu í Fellabæ. Keppendur úr Örvari, íþróttafélagi fatlaðra á Fljótsdalshéraði, kepptu þar gegn vinum sínum og frændum frá Runavik í Færeyjum.