Sameinuðu þjóðirnar hafa frá árinu 1965 helgað 8. september ár hvert málefnum læsis. Í yfirlýsingu frá UNESCO segir að læsi teljist til grunnlífsleikni og lýst yfir að læsi sé kjarni alls náms og varði því alla. Í tilefni af Degi læsis á Íslandi í næstu viku munu Austurglugginn, Morgunblaðið og Víkurfréttir birta framhaldssögu í átta köflum fyrir börn. Kaflarnir birtast einu sinni í viku.
Fréttatilkynning frá Heimili og skóla: Nú er tími svokallaðra busavígslna í framhaldsskólum landsins. Stjórn Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra hvetur skólayfirvöld til að hlutast til um skipulagið og kynna það á heimasíðum skólanna. Þetta er verkefni sem nemendur, skólayfirvöld og foreldrar eiga að vinna saman að. Líklegt er að góður undirbúningur, samvinna og samráð komi í veg fyrir ofbeldi og auki ánægjuna sem fylgir því að byrja í nýjum skóla. Busavígslur eiga að vera uppbyggjandi og ánægjulegar og til þess gerðar að taka vel á móti nýjum nemendum.
Það var mikið um að vera á hafnarsvæðinu á Vopnafirði í síðustu viku því þá var skipað þar út tæplega 3.700 tonnum af sjávarafurðum á vegum HB Granda. Á vefsvæði fyrirtækisins segir að þrjú erlend flutningaskip hafi þá komið til hafnar og lestað frystar síldarafurðir, fiskmjöl og -lýsi. Þá voru Faxi RE og Ingunn AK í höfninni með síldarafla á sama tíma og flutningaskipin voru þar á ferðinni.
Á fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar 1. september sl. var eftirfarandi áskorun vegna heilbrigðisþjónustu í sveitarfélaginu samþykkt og henni beint til heilbrigðisráherra: ,,Staða heilbrigðisþjónustunnar í Fjarðabyggð er algjörlega óásættanleg. Nauðsynlegt er að grafast fyrir um ástæður þess að ekki hafa fengist læknar til starfa í Fjarðabyggð, sunnan Oddsskarðs, með fasta búsetu í sveitarfélaginu. Skortur á hjúkrunarfræðingum er líka viðvarandi vandamál.
Stefanía G. Kristinsdóttir er nýr formaður samtakanna Landsbyggðin lifir. Hún var kjörin formaður á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í Galdrasetrinu á Ströndum 30. ágúst sl. Stefanía er búsett á Egilsstöðum og er framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands. Hún er rekstrarfræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst, BA í heimspeki frá HÍ og MBA í stjórnun í rafrænu umhverfi frá HR og GEM. Stefanía starfaði hjá Rannsóknaþjónustu HÍ í nýsköpunar- og þróunarverkefnum í sex ár og hjá Þróunarfélagi Austurlands í þrjú ár við verkefnastjórnun og sem framkvæmdastjóri Vaxtarsamnings Austurlands.
Næstkomandi föstudag, 4. september, verður fagnað 60 ára afmæli Möðrudalskirkju og kvöldmessa í kirkjunni hefst kl. 20:30. Sóknarprestur, Lára G. Oddsdóttir, prédikar og þjónar fyrir altari, en organisti er Torvald Gjerde. Meðal annars verða sungin og leikin sálmalög eftir kirkjusmiðinn og fyrrum bónda í Möðrudal, Jón A. Stefánsson, en hann byggði kirkjuna á hinum forna grunni Möðrudalskirkju, en þar hafði þá ekki verið kirkja í 22 ár. Kirkjuna reisti Jón í minningu konu sinnar Þórunnar Vilhjálmsdóttur Oddsen, en hún andaðist árið 1944, og Guði til dýrðar. Kirkjan var vígð 4. september 1949.
Sveitakeppni Austurlands í golfi var haldin á Hagavelli á Seyðisfirði laugardaginn 29. og sunnudaginn 30. ágúst.Til leiks mættu sveitir frá Norðfirði, Reyðarfirði, Hornafirði, Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði.Samkvæmt reglugerð keppninnar þá voru í hverjum leik milli sveita leiknir þrír einliðaleikir, þ.e. einn leikmaður á móti einum í holukeppni og einn fjórleikur, þar sem tveir spila saman í liði og slá annað hvert högg.
Fiskeldi HB Granda í Berufirði fékk nýverið 27 þúsund þorskseiði frá
Stofnfiski sem komið var fyrir í eldiskvíum í firðinum. Þetta var annar
seiðaskammturinn í sumar því í júní voru sett út 23 þúsund seiði. Tíu
þúsund þorskar voru fyrir í eldi þannig að um sextíu þúsund fiskar eru
alls í stöðinni. Fiskurinn sem er í eldiskvíunum verður væntanlega ekki
kominn í sláturstærð fyrr en í lok næsta árs, að því er fram kemur á
heimasíðu HB Granda.