Ævintýramenn frá Liechtenstein sendu þyrluna heim með Norrænu
Tveir ævintýramenn frá Liechtenstein, sem ferðast hafa um Ísland undanfarnar fimm vikur á þyrlu, héldu heim á leið með Norrænu í gær. Þyrlan fór um borð eins og hvert annað ökutæki. Þeir völdu frekar afslappandi leið heldur en erfiða leið yfir hafið til Færeyja eins og þegar þeir komu.
Skriðuklaustur: Fallbætur nýttar í menningarsjóð
Viljayfirlýsing hefur verið undirrituð milli mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Gunnarsstofnunar um að ráðherra beiti sér fyrir þvi´að sú fjárhæð, sem nemur andvirði fallbóta Landsvirkjunar fyrir þau vatnsréttindi sem nýtt eru í Kárahnjúkavirkjun, renni í Menningarsjóð Gunnars Gunnarssonar.Tónleikahöllin Tvísöngur opnuð
Fjölmenni var við vígslu á útilistaverkinu „Tvísöngur“ á Seyðisfirði, þegar það var opnað almenningi í gær. Verkið er hljóðskúlptúr, tileinkaður íslenska tvísöngnum. Heimamenn tala um verkið sem tónleikahöll.
Tökuliðið mætt á staðinn: Undirbúið fyrir komu Stillers
Hundur í óskilum í Loðmundarfirði
Norðlenski fjöllistahópurinn Hundur í óskilum treður upp í Loðmundarfirði annað kvöld á árlegum hausttónleikum. Þar sýna þeir tónlistarsýninguna Saga þjóðar.
Óðinn hetja Leiknis: Tókum létta vítakeppni daginn fyrir leik
Leiknir Fáskrúðsfirði er kominn í undanúrslit þriðju deildar karla eftir að hafa unnið Víði í garði í seinni leik liðanna í fyrrakvöld í vitaspyrnukeppni. Markvörðurinn Óðinn Ómarsson var hetja Leiknis því hann varði tvær spyrnur og skoraði úr þeirri fimmtu sem kom liðinu áfram.
Tökuliðið mætt á staðinn: Undirbúið fyrir komu Stillers
Kvikmyndatökulið Ben Stillers sást á ferli í Seyðisfirði í dag við undirbúning en stórstirnið sjálft er væntanlegt á morgun þegar tökur hefjast.