Sláturfélag Austurlands hefur verið úrskurðað gjaldþrota, fjórum mánuðum eftir að félagið opnaði kjöt- og fiskbúð í miðbæ Egilsstaða. Talsmaður félagsins segir að þær áætlanir sem gerðar voru fyrir sumarið hafi ekki gengið eftir.
Vinkona Karls Jónssonar frá Galtastöðum fram segist hafa verið slegin þegar upp á hann voru bornar sakir fyrir dómi um að hann hefði girnst börn. Hann hafi verið gestkomandi á heimili hennar þar sem börn voru fóstruð og aldrei af sér neina hegðun sem benti til þess.
Í liðinni viku komu fulltrúar Soroptimistaklúbbs Austurlands færandi hendi á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. Klúbburinn gaf fæðingadeild sjúkrahússins hjartasírita en tilefnið var 10 ára afmæli klúbbsins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, vill að íbúar höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar hætti að skipta sér í tvær andstæðar fylkingar í þjóðmálaumræðunni. Samvinna þjóni betur Íslendinga í heild.
„Halló. Ég heiti Friðrik Brynjar. Ég held ég hafi drepið mann,“ voru fyrstu orð Friðriks Brynjars Friðrikssonar í símtali til Neyðarlínunnar aðfaranótt 7. maí. Friðrik Brynjar er ákærður fyrir að hafa ráðið Karli Jónssyni bana.
Ein algengasta orsök þess að fólk hættir störfum hjá Alcoa Fjarðaáli og flytur í burtu frá Austurlandi er að það saknar vina sinna sem búa annars staðar á landinu. Mikilvægt er að fjölbreytt atvinna sé í boði á svæðinu til að byggja upp öflugt samfélag sem fólk vill búa í.
Vindhviðan sem mældist í Hamarsfirði upp á rúma 70 metra á sekúndu í byrjun vikunnar er sennilega ein sú snarpasta sem mælst hefur á Íslandi í septembermánuði. Hausthvellir eru þó alls ekki nýir af nálinni. Veðurfræðingur telur líklegra að tilviljun ráði því að akkúrat ár er á milli tveggja slíkra á Austurlandi frekar en að um varanlega breytingu sé að ræða í veðurkerfum.
Melarétt í Fljótsdal hefur verið seinkað um sólarhring vegna þess hve hægt hefur gengið að smala. Göngumenn í Rana á Fljótsdalsheiði hafa fundið dautt fé í fönn eftir veðuráhlaupið sem gerði í byrjun vikunnar.
Banamein Karls Jónssonar, sem myrtur var á heimili sínu á Egilsstöðum í byrjun maí, var mikill blóðmissir. Áverkarnir voru veittir af miklu afli. Meintur gerandi var ofurölvi kvöldið sem morðið var framið.
Ákveðin svæði á landsbyggðinni eru í blússandi sókn á meðan önnur berjast fyrir tilverurétti sínum. Á Íslandi skortir skýra byggðastefnu þar sem tekið er af alvöru á vanda þeirra byggða sem eru í vanda.
Vegagerðin vinnur að mótun verklagsreglna um allt land til að koma í veg fyrir að ferðamenn fari um vegi sem eiga að heita ófærir. Merkingum á ljósaskiltum var í vikunni tímabundið breytt á ensku til að reyna að koma í veg fyrir ferðafólk færi sér að voða.
Óttast er að fé hafi farist á Jökuldal í óveðrinu sem gengið hefur yfir Austurland síðustu tvo daga. Veðrið var verra og snjólínan náði lengra niður en menn gerðu ráð fyrir. Skaðinn er samt ekki orðinn ljós þar sem ekki hefur verið hægt að smala þau svæði sem næst eru bæjunum til að kanna stöðuna.