„Samtakamátturinn getur gert ótrúlega hluti“

„Fyrir heildarásýnd ferðamennskunnar er þetta nauðsynlegt skref,“ sagði Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdarstjóri Austurbrúar, en fulltrúar sjö austfirskra ferðaþjónustuaðila voru meðal þeirra sem undirrituðu yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu á þriðjudag.

Lesa meira

„Impassable“ skipt út

Vegagerðin ætlar á þessu ári að skipta út lokunarskiltum með orðinu „impassable“ sem ruglað hafa einhverja ferðamenn. Björgunarsveitarmaður á Breiðdalsvík telur hægt að veita ókunnugum ferðamönnum mun betri upplýsingar en nú er gert.

Lesa meira

Gæti þitt verkefni hlotið styrk?

„Með árlegri styrktarúthlutun leitast bærinn við að komast til móts við þau verkefni sem fram fara í Fjarðabyggð svo við öll getum notið góðs af og haft auk þess hvetjandi áhrif á fleiri til þess að taka þátt,“ segir Dýrunn Pála Skaftadóttir, formaður menningar- og safnanefndar, sem nú auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarmála fjárhagsárið 2017.

Lesa meira

Ylströndin verður sterkur ferðamannasegull

„Það var sérstaklega ánægjulegt þegar búið var að skrifa undir samningana og nú getur hönnunarvinnan farið í gang,“ segir Ívar Ingimarsson, einn af hluthöfum Ylstrandarinnar við Urriðavatn, sem áætlað er að opni vorið 2019.

Lesa meira

„Hlakka til að gefa til baka í mínu starfi“

„Starfið leggst ákaflega vel í mig, enda hefur verið skemmtilegt að sinna því undanfarið ár. Það er fjölbreytt og lifandi, kannski svolítið í mínum anda,“ segir Erla Björk Jónsdóttir sem skipaður hefur verið héraðsprestur Austurlandsprófastsdæmis.

Lesa meira

Auglýsa eftir rekstraraðila Miklagarðs: Verði opið menningarhús

Vopnafjarðarhreppur hefur auglýst eftir aðila til að sjá um rekstur félagsheimilisins Miklagarðs. Væntanlegum rekstraraðila er ætlað að standa fyrir fjölbreyttu félagslífi og er skylt að skrá starfsemi fyrirtækis síns í sveitarfélaginu.

Lesa meira

Nafnið endurspeglar það sem staðurinn stendur fyrir

„Við skynjuðum markaður væri fyrir svona stað í Fjarðabyggð og Austurlandi öllu. Við skilgreinum okkur sem veitingastað og bar þó svo að það verði hægt að grípa hér í gos og almennt slykkerí,“ segir Ragnar Sigurðsson, annar eigandi nýs veitingastaðar sem opnar á Reyðarfirði á laugardaginn.

Lesa meira

Tækifæri til að þróa viðskiptahugmyndir undir leiðsögn

Ástu Kristín Sigurjónsdóttir, klasastjóri Íslenska ferðaklasans, segir gríðarleg verðmæti felast í því að taka þátt í svokölluðum viðskiptahraðli sem Icelandic Strartups stendur fyrir í samstarfi við Íslenska ferðaklasann.

Lesa meira

„Teikna eitt stykki hótel og gleyma jafnvel vatnsveitunni“

Aukning ferðamanna reynir á ýmsa innviði samfélaga. Nýir gististaðir utan þéttbýlisstaða spretta svo hratt upp að ekki er hugsað fyrir fráveitu og jafnvel ekki vatnsveitu áður en farið er af stað. Byrjað er að bóka gistingu áður en öll leyfi eru komin.

Lesa meira

Sjö Austfirðingar fá listamannalaun

Sjö Austfirðingar eru meðal þeirra tæplega 400 einstaklinga sem hljóta listamannalaun í ár. Flestir hljóta laun úr launasjóði hönnuða eða þrír.

Lesa meira

Stöð Hringrásar ómönnuð mánuðum saman

Hliðið að starfsstöð Hringrásar á Reyðarfirði var opnað að morgni og lokað á kvöldi en þar var enginn starfsmaður til að tryggja rétta meðferð spilliefna svo mánuðum skipti. Óvíst virðist um framtíð starfseminnar.

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar