Páll Breiðfjörð Pálsson ráðinn framkvæmdastjóri Hitaveitu Egilsstaða og Fella
Páll Breiðfjörð Pálsson, véla- og rekstrarverkfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hitaveitu Egilsstaða og Fella (HEF) frá og með 1. maí. Hann segist spenntur fyrir að takast á við áskoranir sem fylgja nýju starfi.Telja sjálfboðaliða aðeins mega fegra fólkvanga og fjörur
AFL Starfsgreinafélag hefur farið þess á leit við sveitarfélög á Austurlandi að þau takmarki notkun sína á sjálfboðaliðum við verk á þeirra vegum. Sjálfboðaliðarnir geti aðeins unnið afar afmörkuð störf sem annars væru ekki unnin af launafólki.Biðla til ráðherra um aðstoð við Mjóafjörð
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar hefur óskað eftir því við ráðherra sveitarstjórnarmála að hann beiti sér fyrir aðgerðum sem miði að því að tryggja framtíð útgerðar í Mjóafirði. Byggðakvóti sem úthlutað hefur verið þangað er fallinn úr gildi og fæst ekki endurnýjaður.Konurnar flytja þegar opinbera þjónustan minnkar
Niðurskurður á opinberri þjónustu hefur meiri áhrif á búsetu kvenna en karla á dreifbýlum samkvæmt nýrri norrænni samantekt. Menntaðar konur á barneignaraldri eru líklegastar til að flytja í burtu. Tryggja þarf fjölbreyttari atvinnutækifæri og efla aðgengi og menntun og heilbrigðisþjónustu til að snúa þróuninni við.Undirbúa gervihnattamælingar til að fylgjast með Strandartindi
Veðurstofa Íslands undirbýr nú gervihnattamælingar til að fylgjast með sífrera í Strandartindi sem er ofan við sunnanverðan Seyðisfjarðarkaupstað. Hætta er á að hlýnandi loftslag geti valdið skriðuföllum úr tindinum. Mikil skriða féll úr honum síðasta sumar.Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer hægt af stað
Innan við 20 manns hafa kosið enn sem komið er utan kjörfundar í atkvæðagreiðslu um sameiningu Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar sem fram ver síðar í mánuðinum. Tveir hreppsstjórar voru skipaðir tímabundið til að taka á móti atkvæðum.Fagna lokun skrifstofunnar í Reykjavík
Svæðisráð austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs fagnar því að ákveðið hafi verið að loka skrifstofu garðsins í miðborg Reykjavíkur í hagræðingarskyni. Barist er um framtíðaraðsetur aðalskrifstofu þjóðgarðsins.„Allt of margir sem telja að þetta komi sér ekki við“
„Þú þarft aðeins að hafa verið félagi í viku til þess að bjóða þig fram í stjórn og hafa kosningarétt á aðalfundi,“ segir Margrét Árnadóttir, formaður félagasamtakanna Ungt Austurland, en félagið leitar nú eftir einstaklingum til að starfa með félaginu.
Glöð og ánægð yfir að vera komin til nýrra heimkynna
Sjö manna fjölskylda á flótta kom til Reyðarfjarðar á miðvikudaginn var. Þar með eru komnir þeir 19 flóttamenn sem væntanlegir voru til sveitarfélagsins í byrjun árs. Framundan er að kynnast nýjum heimkynnum.Tíðarfar sem er ekki vinur snjómokstursreikningsins
Snjómokstursmenn á Austurlandi hafa haft í nógu að snúast undanfarna viku. Víðast hvar hefur snjóað duglega og segja má að snjókoman sé stöðug. Snjórinn er laus í sér en safnast þegar saman kemur.Telur svæðið eiga margvísleg spennandi tækifæri
„Ég hlakka til að takast á við starfið. Mér líður vel á Austurlandi og tel svæðið eiga margvísleg tækifæri sem spennandi verður að vinna að, segir Gunnar Gunnarsson, sem ráðinn hefur verið nýr framkvæmdarstjóri Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands.