Vill skipta á jöfnu í samningum við Færeyinga

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra, segir tíma til kominn að Íslendingar og Færeyingar skipti á sléttu í samningum um fiskveiðar. Skiptimyntin er kolmunni sem skiptir Austfirðinga miklu máli.

Lesa meira

„Perlurnar eru mikilvægar fyrir svæðið“

Mikil aðsókn var í gönguleikjunum Perlur Fljótsdalshéraðs og Heiðarbýlin í göngufæri sem Ferðafélag Fljótsdalshéraðs stendur fyrir. Forsvarsmaður segir verkefnið gott fyrir samfélagið og vekji athygli aðkomufólks.

Lesa meira

Djúpivogur samþykkir sameiningarviðræður

Sveitarstjórn Djúpavogshrepps varð í gærkvöldi síðust til að samþykkja að taka þátt í sameiningarviðræðum fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi. Gert er ráð fyrir að viðræðum verði lokið áður en árið 2020 gengur í garð.

Lesa meira

„Ég vil ekki að synir mínir þurfi að vaða minn skít“

„Ég geri varla annað en að neita viðtölum þessa dagana, en ég vildi bara tala við staðarfjölmiðilinn, þó svo ég hafi ekki einu sinni ætlað að gera það fyrst,“ sagði Norðfirðingurinn Grétar Sigursson þegar hann settist niður með blaðamanni Austurgluggans á kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur á dögunum. Grétar er einn þriggja sem hlaut dóm í hinu svokallaða líkfundamáli árið 2004, en kvikmyndin Undir halastjörnu sem byggir á málinu var frumsýnd á dögunum. Viðtalið í heild sinni má lesa í Austurglugganum sem kemur út í dag. 

Lesa meira

„Því miður er þörfin mikil“

„Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Tekið verður á móti skókössum í Egilsstaðakirkju næsta fimmtudag milli klukkan 17:00 og 21:00.

Lesa meira

Lýsa yfir vonbrigðum með samgönguáætlun

Sveitarstjórn Djúpavogshrepps lýsir yfir vonbrigðum með samgönguáætlun sem nýverið var lögð fram á Alþingi. Ekki er gert ráð fyrir að Axarvegur komist til framkvæmda á næsta áratug samkvæmt henni.

Lesa meira

Vantar minni íbúðir fyrir eldra fólk

Íbúðir í hjúkrunarheimilinu Sundabúð eru of litlar fyrir fólk sem er tekið að eldast og vill flytja í smærra húsnæði. Framboð á íbúðarhúsnæði er eitt af því sem hamlar uppbyggingu á Vopnafirði.

Lesa meira

„Við tók algerlega súrrealískt ástand“

„Ég var inni í húsinu Brennu, í miðbæ Neskaupstaðar, þar sem ritstjórnarskrifstofa Austurgluggans var þá. Ég man að ég var að lesa yfir blað vikunnar sem við höfðum klárað kvöldið áður, þegar síminn hringdi. Þetta var vinur minn sem vann í netagerðinni og hann sagði mér einfaldlega, blátt áfram, að það hefði fundist lík við bryggjuna, pakkað inn og með stunguförum. Þetta var eins hádramatískt og það gat orðið,“ segir Jón Knútur Ásmundsson, sem var ritstjóri Austurgluggans árið 2004.

Lesa meira

Ekki rétt að bæjarfulltrúar skammist út í starfsmenn á fundi

Bæjarfulltrúar meirihluta og bæjarstjóri Fjarðabyggðar áminntu bæjarfulltrúa Miðflokksins fyrir orð hans í garð starfsmanna sveitarfélagins á bæjarstjórnarfundi á fimmtudag. Ekki væri rétt að bera sakir á þá sem ekki sætu fundinn og gætu ekki svarað fyrir sig. Bæjarfulltrúinn kvaðst ekki hafa verið með ásakanir í garð starfsfólks.

Lesa meira

Vitnaði í Kim Larsen í jómfrúarræðunni

María Hjálmarsdóttir, varaþingmaður frá Eskifirði, vitnaði í danska tónlistarmanninn Kim Larsen þegar hún flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi í dag. Hún ræddi þar stöðu barna sem eiga foreldra sem standa einhverra hluta vegna höllum fæti.

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar