Leitað að bíl eftir innbrot á Reyðarfirði
Lögreglan á Austurlandi lýsir eftir litlum sendiferðabíl með númerið KSA93 eftir innbrot á Reyðarfirði aðfaranótt miðvikudags.„Aukin meðvitund er fyrsta skrefið að breytingum“
Gestir á lokahófi verkefnisins „Austfirskt fullveldi – sjálfbært fullveldi“ voru hvattir til þess að skrifa miða með hugmyndum að því hvernig hægt væri að gera heiminn betri í daglegu lífi í anda heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.„Fólk var bara hrært yfir þessu“
Nýstofnuð Sinfóníuhljómsveit Austurlands hélt sína fyrstu tónleika 1. desember. Húsfyllir var á tónleikunum, sem haldnir voru í Menningarmiðstöð Austurlands á Eskifirði, þar sem brot úr nokkrum frægustu sinfóníuverkum heims voru leikin.Framkvæmdaáætlun ekki meitluð í stein eins og töflurnar sem Móses kom með af fjallinu
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð gagnrýna frestun á stækkun leikskólans á Eskifirði í framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins. Fulltrúar meirihlutans segja framkvæmdaáætlun lifandi skjal sem breytist eftir þörfum og fjárhag.„Segja má að barinn sé óopinbert sendiráð Íslendinga á Tenerife“
„Eigendur og starfsfólk hjólaleigunnar Bikes of the Bikes, í samráði við vini og kunningja hér á Tenerife, ákváðu að setja söfnunina af stað þegar fréttist að tryggingar bættu tjónið ekki,“ segir Hafþór Harðarson, fyrrverandi fararstjóri á Tenerife og einn þeirra sem vinnur nú að því að létta undir með eigendum „austfirska“ barsins Nostalgíu eftir að brotist var inn á hann í síðustu viku.Garnaveiki greind í Austfjarðahólfi
Garnaveiki hefur greinst í sauðfé frá Þrándarstöðum á Fljótsdalshéraði. Þetta er í fyrsta skipti sem garnaveiki greinist á svæðinu í rúm 30 ár. Allt fé í hólfinu verður bólusett.Snjóflóð tók lyftuskúr í Oddsskarði
Töf verður á að hægt verði að opna byrjendabrekkuna á skíðasvæðinu í Oddsskarði eftir að snjóflóð hreif með sér lyftuskúrinn þar um helgina.