Verja þarf íbúabyggð á Seyðisfirði vegna skriðuhættu
Í nýju áhættumati vegna ofanflóða á Seyðisfirði stækka hættusvæði í suðurbænum undir Neðri-Botnum talsvert vegna þess að hætta af völdum stórra skriðna er metin meiri en áður. Það kallar á varnaraðgerðir fyrir íbúðabyggðina og aukna vöktun.
Opin fyrir hugmyndum til að minnka kolefnisspor skólamáltíða
Síðustu daga hefur skapast umræða um skólamáltíðir vegna áskorunar sem Samtök grænkera á Íslandi sendu á ríki og sveitarfélög til að hvetja til aðgerða vegna hamfarahlýnunnar.
Rúnasteinn afhjúpaður á Bustarfelli
Rúnasteinn sem fannst í Hofkirkjugarði fyrir rúmu ári verður afhjúpaður til sýnis á Minjasafninu á Bustarfelli síðar í dag. Talið er að steinninn sé í hópi yngri rúnasteina sem fundist hafa hér á landi.Framleiðslumet á makríl í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar
Þann 29. ágúst var sett framleiðslumet í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þegar 820 tonn af makríl fóru gegnum húsið á einum sólarhring.
Mikilvægur áfangi: Hjúkrunarfræðingur ráðinn á Borgarfjörð
Hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðinn til starfa á Borgarfjörð eystri á ný, en enginn hjúkrunarfræðingur hefur verið þar búsettur síðustu fjögur ár. Borgfirðingar segja um öryggismál að ræða að hafa fagmanneskju í firðinum til að sinna bráðatilvikum.
Aflahæsti strandveiðibáturinn frá Djúpavogi
Strandveiðum ársins lauk í síðustu viku. Aflahæstur á strandveiðum 2019 var Jón Ingvar Hilmarsson á Birtu SU 36 sem gerir út frá Djúpavogi.