Heldur fleiri sem kunna vel við Múlaþingsnafnið
Útlit er fyrir að nafnið Múlaþing verði staðfest sem nafn á sameinað sveitarfélag Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar á fyrsta fundi sveitarstjórnar í dag. Skiptar skoðanir eru um nafnið samkvæmt skoðanakönnun Austurfréttar/Austurgluggans.Kynna áform um að friðlýsa Gerpissvæðið
Umhverfisstofnun, ásamt sveitarfélaginu Fjarðabyggð og í samstarfi við landeigendur, hefur kynnt áform um friðlýsingu Gerpissvæðisins, milli Norðfjarðar og Reyðarfjarðar. Áformin eru kynnt í samræmi við ákvæði náttúruverndarlaga. Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 1. desember 2020.Laxar fá aukna heimild til framleiðslu í Reyðarfirði
Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi til fiskeldisfyrirtækisins Laxa um eldi á allt að 16 þúsund tonnum af fiski í Reyðarfirði. Fyrirtækið hefur í dag leyfi fyrir sex þúsund tonna eldi þar.Vilja að fólk haldi sig til hlés í 14 daga eftir komuna austur
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur þá sem koma til Austurlands eftir dvöl á höfuðborgarsvæðinu til að halda sig til hlés í 14 daga eftir að komið er inn á svæðið til að hindra útbreiðslu Covid-19 smita.Gerðu 10 milljóna króna á ári samning við Skaftfell
Seyðisfjarðarbær og Samtök sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) hafa gert samning við myndlistarmiðstöðina Skaftfell um fjárstuðning. Nemur upphæðin samtals 10 milljónum kr. á ári næstu fimm árin.SVN fær starfsleyfi fyrir fiskimjölsverksmiðju í Neskaupstað
Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Síldarvinnsluna hf. (SVN) í Neskaupstað til reksturs fiskimjölsverksmiðju. Í nýja starfsleyfinu er tekið tillit til áforma rekstraraðila um aukna afkastagetu.Fjarðabyggð endurnýjar ekki samninga við Íslenska gámafélagið
Fjarðabyggð tilkynnt að sveitarfélagið hyggist ekki endurnýja samning um sorphirðu við Íslenska gámafélagið sem rennur út um áramót. Breytingar eru á döfinni í sorphirðumálum sveitarfélagsins.