Vegna hvassviðris og élja má víða búast við slæmu ferðaveðri á austanverðu landinu fram eftir degi. Búist er við mjög hvössum vindhviðum í Öræfum. Víða um suðaustur- og austurströndinni er ekkert ferðaveður og eru vegfarendur beðnir um að leyta sér upplýsingar um færð og veður áður en lagt er á stað. Austanlands er þæfingur á Fjarðarheiði, mokstur stendur yfir. Hálkublettir, snjóþekja og skafrenningur á öðrum leiðum þó er þungfært og stórhríð er á Breiðdalsheiði. Ófært og óveður er á Öxi. Hellisheiði eystri er lokuð.
Ný myndasýning er komin inn á heimasíðu Héraðsskjalasafns Austfirðinga, www.heraust.is.Sýningin nefnist einfaldlega Jólasýning. Að venju hefur Arndís Þorvaldsdóttir haft veg og vanda af vali mynda á sýninguna og jafnframt ritar hún myndatexta. Myndirnar í sýningunni eru allar teknar af Emilíu Blöndal. Ártöl eru tilgreind séu þau þekkt.
642 umsóknir frá 49 löndum hafa borist til stjórnenda kvikmynda- og vídeólistahátíðarinnar 700IS Hreindýraland. Þetta er nýtt met og mikil ánægja með áhugann á hátíðinni. Nú fer sýningarstjóri og stjórnandi hátíðarinnar, Kristín Scheving, í gegnum verkin og mun síðan ásamt valnefnd 2010 velja verkin sem hljóta peningaverðlaun, ferðastyrk og Alternative Routes verðlaunin. Hátíðin verður haldin frá 20. mars til 27. mars 2010 á Austurlandi.
Jólablað Austurgluggans er komið út. Þar má finna margvíslegt jólaefni, viðtöl við Austfirðinga, verðlaunagetraunir; krossgátur, myndagetraun og íþróttagetraun og jólakveðjur forystumanna austfirskra sveitarfélaga og þingmanna kjördæmisins. Austurglugginn er ómissandi á aðventunni og yfir jólin! Fæst á betri blaðsölustöðum.
Nú eru að verða síðustu forvöð að senda inn jólaauglýsingar í glæsilegt og efnismikið jólablað Austfirðinga, Austurgluggann, sem kemur út á föstudag. Vinsamlega hafið samband við auglýsingadeild í síma 891-6484. Áfram Austurland!
Sjávarútvegsfyrirtækin Eskja, Brimberg og Gullberg gáfu mest til
tveggja frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Norðausturkjördæmi fyrir þingkosningarnar í vor.
Matís hefur ráðið Hrund Erlu Guðmundsdóttur til starfa hjá Matvælamiðstöð Austurlands (MMA) en hún hóf störf í byrjun nóvember.Hrund útskrifaðist með BS próf frá Matvælafræðiskori Háskóla Íslands 2003.Hún starfaði hjá Actavis á árunum 2005-2009 og Vífilfelli 2002-2005.Hrund er ráðin sem verkefnastjóri hjá Matís og mun sjá um verkefni MMA í samvinnu við samstarfsaðila verkefnisins, sem eru Þróunarfélag Austurlands, mjólkurframleiðendur á Héraði, Búnaðarsamband Austurlands, Auðhumla, sveitarfélagið Fljótsdalshérað og Matís.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samband sveitarfélaga á Austurlandi boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, á Egilsstöðum mánudaginn 14. desember. Fundurinn er haldinn í kjölfar þess að nýlega undirrituðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga yfirlýsingu um að skipa samstarfsnefnd til að ræða og meta sameiningarkosti sveitarfélaga í hverjum landshluta.
Um daginn sagði við mig kona að það væri bara ekkert í þessu blaði, Austurglugganum. Ég leit hvumsa á hana og spurði hvort síðurnar væru virkilega auðar? Hún firrtist auðvitað við en ég glotti og fannst ég bara nokkuð fyndin.