Sveitarfélagið Fljótsdalshérað úthlutaði á dögunum styrkjum til menningarstarfs fyrir árið 2009. Sautján umsóknir bárust. Félag skógarbænda á Héraði hlaut hæsta styrkinn, kr. tvö hundruð þúsund, vegna skógardagsins mikla í Hallormsstað.
Á laugardagskvöldið var árs- og uppskeruhátíð Blaksambandi Íslands. Þar kom kvennalið Þróttar sterkt inn í verðlaunaafhendinunum en veitt voru eftirfarandi verðlaun í kvennaflokki:
Eskja hf. á Eskifirði hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem umfjöllun sænska ríkissjónvarpsins um mjölvinnslu fyrirtækisins í þættinum Uppdrag Granskning sem sýndur var 25. febrúar er hörmuð. Í þættinum var rætt við Hauk Björnsson, þáverandi framkvæmdastjóra Eskju og Hauk Jónsson verksmiðjustjóra. Fréttaauki Sjónvarps fjallaði um þátt sænska sjónvarpsins í gær.
Á dögunum stofnaði bókaforlagið Uppheimar nýjan bókaklúbb á Netinu, Undirheima. Klúbburinn, sem er án nokkurra skuldbindinga, býður upp á norrænar glæpasögur í hæsta gæðaflokki á hagstæðum kjörum.
Um þessar mundir og á næstu vikum koma út eftirtaldar bækur hjá Undirheimum: Land tækifæranna eftir Ævar Örn Jósepsson, Þar sem sólin skín eftir Lizu Marklund, Rauðbrystingur eftir Jo Nesbø, Óheillakrákan eftir Camillu Läckberg og Kallaðu mig prinsessu eftir Söru Blædel.
Nú er í undirbúningi Ferðafagnaður á landsvísu (hét áður Ferðalangur í heimabyggð) sem er hugsaður sem kynningar- og hátíðisdagur íslenskrar ferðaþjónustu, 18. apríl. Grunnhugmyndin er að ferðaþjónustan veki athygli á skemmtilegri og víðfeðmri starfsemi sinni og geri almenning meðvitaðri um allt það góða sem ferðaþjónustan hefur upp á að bjóða. Viðburðurinn hefur vaxið ár frá ári. Reynslan sýnir að íbúar kunna vel að meta að kynnast þeirri fjölbreyttu afþreyingu sem er í boði á heimaslóð. Fyrir ferðaþjónustuna er þetta frábært tækifæri til að kynna það sem er í boði fyrir ferðamenn.
Árshátíð Grunnskóla Reyðarfjarðar var haldin fyrir fullu húsi síðastliðið miðvikudagskvöld. Þema hátíðarinnar var Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva Eurovision eða Reyðóvision. Meðal frábærra skemmtiatriða var frumsamið þungarokk, skrautlegt Eurovisionpartý, áheyrnarprufur þar sem ólíklegustu þátttakendur birtust og lifandi póstkort frá Íslandi. Nemendur fóru hreinlega á kostum í hlutverkum sínum og það var sungið, spilað á hljóðfæri, dansað og leikið af hjartans lyst.
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað úthlutaði fyrir skömmu styrkjum að upphæð kr. 600.000.- til íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmála fyrir árið 2009. Sjö umsóknir bárust.
Egilsbúð í Neskaupstað efnir til tónleika með hinum ástsæla tónlistarmanni Gunnari Þórðarsyni næstkomandi laugardag. Gunnar fer yfir langan og farsælan feril sinn í tali og tónum og lög eins og Gaggó Vest, Þitt fyrsta bros, Fyrsti kossinn, Bláu augun þín, Ég elska alla og Harðsnúna Hanna munu væntanlega óma um salinn og ylja tónleikagestum. Ýmislegt er framundan í Egilsbúð og svo dæmi sé tekið verður þar pókermót dagana 17. og 18. apríl.
Verkefnastaða jarðvinnuverktaka á Fljótsdalshéraði er þokkaleg fyrir komandi vor og sumar. Austfirskir verktakar gætu mögulega leitað eftir verkefnum fyrir stóra erlenda aðila eins og Bechtel á erlendri grund.