Ferðafagnaður 18. apríl

Nú er í undirbúningi Ferðafagnaður á landsvísu (hét áður Ferðalangur í heimabyggð) sem er hugsaður sem kynningar- og hátíðisdagur íslenskrar ferðaþjónustu, 18. apríl. Grunnhugmyndin er að ferðaþjónustan veki athygli á skemmtilegri og víðfeðmri starfsemi sinni og geri almenning meðvitaðri um allt það góða sem ferðaþjónustan hefur upp á að bjóða. Viðburðurinn hefur vaxið ár frá ári. Reynslan sýnir að íbúar kunna vel að meta að kynnast þeirri fjölbreyttu afþreyingu sem er í boði á heimaslóð. Fyrir ferðaþjónustuna er þetta frábært tækifæri til að kynna það sem er í boði fyrir ferðamenn.

feralangur3.jpg

 

Markmið Ferðafagnaðar er tvíþætt:  Annars vegar að kynna það sem er í boði fyrir erlenda sem innlenda ferðamenn því vel upplýstir heimamenn sem þekkja fjölbreytta möguleika í boði eru bestu sölumenn sem starfa í þágu ferðaþjónustunnar. Hins vegar er markmið Ferðalangs að ferðaþjónustan bjóði heimamenn velkomna með því að opna sínar dyr með því að veita verulegan og sýnilegan afslátt af sinni þjónustu og/ eða setji saman sérstaka ferðatengda dagskrá (göngur, siglingar, kaffiveitingar og fleira kemur til greina) í þágu viðburðarins.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.