Eskja harmar vinnubrögð sænska sjónvarpsins

Eskja hf. á Eskifirði hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem umfjöllun sænska ríkissjónvarpsins um mjölvinnslu fyrirtækisins í þættinum Uppdrag Granskning sem sýndur var 25. febrúar er hörmuð. Í þættinum var rætt við Hauk Björnsson, þáverandi framkvæmdastjóra Eskju og Hauk Jónsson verksmiðjustjóra. Fréttaauki Sjónvarps fjallaði um þátt sænska sjónvarpsins í gær. logo.gif

 

Eskja sendi í kjölfar sýningar þáttarins yfirlýsingu til viðskiptavina þar sem m.a. kom fram að skipulagsbreytingar (framkvæmdastjóraskipti, innsk.blm.) séu nauðsynlegar til að takast á við þær alvarlegu aðstæður sem komu upp í kjölfar sænska sjónvarpsþáttarins og liður í að endurreisa traust á fyrirtækinu hjá viðskiptavinum.  

Yfirlýsing frá Eskju hf. 23. mars 2009:

 

Í tilefni af sænska sjónvarsþættinum Uppdrag Granskning sem sýndur var í sænska ríkissjónvarpinu 25. febrúar síðastliðinn og fjallaði að miklu leyti um neyslu á laxi, laxeldi og fóðrun á eldisfiski vill stjórn Eskju hf. koma eftirfarandi á framfæri:

 

Fullyrðingar og framkoma starfsmanns Eskju hf. í þættinum endurspeglar á engan hátt viðhorf félagsins né eigenda þess. Sænsku sjónvarpsmennirnir nálguðust félagið á fölskum forsendum og viðkomandi starfsmaður var fenginn til viðtals á eigin ábyrgð. Markmið Svíanna var að fjalla um venjulegan mann í íslensku sjávarþorpi en ekki átti að nota framlag hans í því samhengi sem síðar varð ljóst. Harmar stjórn Eskju hf. þessi vinnubrögð sænska sjónvarpsfólksins við gerð þáttarins.

 

Stjórn Eskju hf. gerir auk þess fyrirvara um framsetningu þáttarins varðandi  veiðar fyrirtækisins á uppsjávarfiski og viðskipti félagsins við norska fóðurframleiðendur.

 

Eskja hf. er sjávarútvegsfyrirtæki á Eskifirði með 70 starfsmenn. Félagið gerir út tvö uppsjávarveiðiskip og starfrækir hágæða fiskimjölsverksmiðju. Eskja hf. er aðili að yfirlýsingu sjávarútvegsráðuneytisins um ábyrgar fiskveiðar á Íslandsmiðum og hagar starfsemi sinni í samræmi við það.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.