Rotaryklúbbur Héraðsbúa stendur í kvöld fyrir opnum fundi um efnahagsmálin. kl. 20:00.Fyrirlesari verður Vilhjálmur Bjarnason lektor sem skv. fréttatilkynningu frá klúbbnum hefur nálgast málefni fyrirtækja, fjárfesta og fjölskyldna af festu og á faglegan hátt á síðasta ári. Fundurinn hefst kl. 20 í Hlymsdölum, Egilsstöðum, gegnt Hótel Héraði.
Í dag mun Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra opna Menntasetrið á Þórshöfn með formlegum hætti. Menntasetrið er samstarfsverkefni Framhaldsskólans á Laugum og Þekkingarseturs Þingeyinga sem upphaflega fór af stað fyrir tilstuðlan sveitastjórnar Langanesbyggðar. Dagleg störf eru þegar hafin í setrinu og nú stunda þar 6 framhaldsskólanemar nám frá Laugum auk þess sem 3 nemar eru í dagtímum í fjarfundabúnaði, bæði á framhalds- og háskólastigi. Auk dagnemanna hafa fjarnemar í sjálfstæðu fjarnámi hafa fullan aðgang að lestraraðstöðu. Menntasetrið sinnir einnig símenntun frá Bakkafirði til Raufarhafnar og er tengiliður við fyrirtæki hvað varðar endurmenntun og námskeiðshald.
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Austurlands um að nálægt 40% af landi Brúar I og II norðan Vatnajökuls sé þjóðlenda. Óbyggðanefnd úrskurðaði landið sunnan Álftadalsdyngju að Vatnajökli þjóðlendu 2007, landeigendur fóru með málið fyrir Héraðsdóm Austurlands, sem staðfesti úrskurð Óbyggðanefndar, líkt og Hæstaréttur gerir einnig. Stefán Halldórsson, annar eigandi Brúar er afar ósáttur við niðurstöðuna.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa undirritað yfirlýsingu um að móta tillögur sem leitt geta til frekari sameiningar sveitarfélaga. Ráðherra mun síðan leggja áætlun fyrir Alþingi til afgreiðslu.
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands býst við stofnunin
þurfi að skera niður um 100-150 milljónir í rekstri sínum á næsta ári.
Búast megi við að áfram verði skorið niður á næstu árum.
Framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun lýkur formlega með athöfn í Fljótsdalsstöð næstkomandi föstudag að viðstaddri Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Ráðherra og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, flytja ávörp. Afhjúpað verður upplýsingaskilti við stöðina um framkvæmdirnar og björgunarsveitir á Jökuldal og Héraði fá afhenta styrki í tilefni tímamótanna.
Sveitarstjórar Fljótsdalshéraðs og Djúpavogshrepps hitta samgönguráðherra á stuttum fundi vegna sameiningar sveitarfélaganna tveggja, á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, sem hefst í fyrramálið. Þess er vænst að mál skýrist eftir þann fund.
Verið er að ljúka við að reisa stálgrind fiskmjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði. Samkvæmt áætlunum á að vera lokið við að klæða verksmiðjuhúsið í októbermánuði. Í klæðninguna verða notaðar einangraðar einingar úr áli og eru þær í sama lit og önnur mannvirki HB Granda við höfnina á Vopnafirði.