Krefjast breytinga á regluverki í sjávarútvegi
Fjölmennur íbúafundur sem haldinn var á Borgarfirði eystra í júní samþykkti einróma ályktun þar sem farið er fram á þrenns konar breytingar á lögum og reglugerðum sem tengjast sjávarútvegi. Ótækt sé að regluverkið gangi gegn hagsmunum samfélagsins.
Blængur með mettúr í Barentshaf
Frystitogarinn Blængur NK kom til hafnar í Neskaupstað á föstudag með algjöran metafla eftir langt úthald í Barentshafi. En Blængsmenn skiluðu ekki aðeins verðmætum afla á land því margskonar rusl kom upp úr sjó með veiðarfærunum sem skipið færði einnig til lands og komið var til förgunar.Tíu milljónir til Borgarfjarðar úr Öndvegissjóði
Á dögunum var úthlutað styrkjum úr sérstökum Öndvegissjóði Brothættra byggða, sem stofnað var til í ár sem hluta að aðgerðum til að bregðast við neikvæðum afleiðingum Covid-19 faraldursins. Valin verkefni af hverju svæði innan Brothættra byggða gátu sótt í úthlutunina og hlaut verkefnið Samfélagsmiðstöðin Fjarðarborg veglegan styrk.