Varað við roki og rigningu

Gular viðvaranir eru í gildi á Austurlandi og Austfjörðum vegna mikillar úrkomu og hvassviðris.

Viðvörun vegna rigningar var gefin út eftir hádegi í dag fyrir Austurland að Glettingi og gildir fram undir hádegi á morgun. Nokkuð hefur rignt í dag en von er þó á að heldur dragi úr henni í kvöld.

Hún gæti síðan breyst í slyddu fyrri hluta nætur en aftur er búist við talsverðri úrkomu í fyrramálið.

Í aðvörun Veðurstofu Íslands segir að búast megi við vatnavöxtum í ám og lækjum um leið og líkur aukist á skriðuföllum og grjóthruni úr hlíðum. Álag eykst á fráveitukerfi og er fólk því hvatt til að huga að niðurföllum til að forðast tjón.

Þá er í gildi gul viðvörun vegna hvassrar norðvestan áttar á Austfjörðum, einkum syðst með hviðum yfir 25 m/s. Slíkt er varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Mynd úr safni.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.