Rjúpnaveiðar teljast ekki til brýnna erinda
Regla um tveggja metra fjarlægð milli óskyldra aðila mun einnig gilda fyrir landsbyggðina frá og með næsta þriðjudegi. Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands varar áfram við ferðum milli landshluta og beinir nú viðvörunum sínum sérstaklega til rjúpnaskytta.Milljóna króna tjón vegna hafnarskemmda á Eskifirði
Búið er að laga að mestu skemmdirnar á Hafskipabryggjunni á Eskifirði. Það er orðið hættulaust að keyra um bryggjuna en vinnan er ekki alveg búin. Ljóst er að tjónið hleypur á milljónum króna.Ekki alltaf hægt að uppfæra upplýsingar um færð jafn óðum
Aðstæður til hálkumyndunar geta komið upp snarlega og án þess að eftir þeim takist eða upplýsingar um færð hjá Vegagerðinni séu uppfærðar.Verið að prufukeyra nýja frystiklefann hjá Eskju
Þessa dagana er verið að prufukeyra nýja frystiklefann hjá Eskju á Eskifirði. Jón Kjartansson SU kom í höfn með 800 tonn af síld í gærmorgun og var hún sett í klefann.Reiðarslag ef enginn loðnukvóti er gefinn út þriðja árið í röð
Forstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað segir það reiðarslag ef loðnubrestur verður þriðja árið í röð. Hafrannsóknastofnun leggst gegn veiði eftir nýafstaðinn rannsóknaleiðangur. Gunnþór telur þó rétt að anda með nefinu að sinni.Misskilningfarsi í boði leikfélagsins
Leikfélag Fljótsdalshéraðs hefur sýningar á leikritinu Fullkomið brúðkaup eftir Robin Howdon í lok mánaðarins. Guðjón Sigvaldason er leikstjóri. Um er að ræða gamanleikrit eða "misskilningsfarsa" eins og leikstjórinn orðar það.Covid-faraldurinn flækir læknamönnun hjá HSA
Heilbrigðisstofnun Austurlands á erfiðra um vik með að fá lækna til starfa vegna mikils álags á Landsspítalanum og ferðatakmarkana út af Covid-19 faraldrinum. Slíkt getur leitt til þess að skerða þurfi þjónustu.Varað við hálku á heiðum
Varað er við hálku á Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og Öxi nú í morgunsárið.