Vöktunartæki pöntuð eftir skriðuföllin komin upp
Búið er að koma upp sjálfvirkri alstöð sem pöntuð var til að vakta fjallshlíðina ofan Seyðisfjarðar eftir skriðuföllin þar um miðjan desember. Veðurstofan vill gera tilraunir þar með búnað sem ekki hefur áður verið notaður hérlendis. Hreyfingar í hlíðinni hafa verið óverulega frá því fyrir jól.Ósátt við að ríkið ætli ekki að greiða hreinsunarkostnaðinn að fullu
Bæjarfulltrúar í Múlaþingi eru ósáttir við að íslenska ríkið ætli ekki að greiða nema 2/3 kostnaðar við hreinsunarstörf í kjölfar skriðufallanna á Seyðisfirði um miðjan desember. Flóknara og þar með dýrara er að þrífa eftir aurskriður en snjóflóð.Gullver NS landar við Strandarbakka á Seyðisfirði
Gullver NS er að landa á Seyðisfirði í dag. Gullver landar við Strandarbakka en þetta mun í fyrsta sinn sem fiski er landað þar.Spá að vindur nái fellibylsstyrk á Austfjörðum
Veðurstofan hefur uppfært veðurviðvörun sína fyrir Austurland að Glettingi og Austfirði úr gulu í appelsínugult. Spáð er að vindur í hviðum á Austfjörðum fari yfir 45 m/s sem er fellibylsstyrkur.Taka jákvætt í rafskútuleigu á Egilsstöðum
"Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tekur jákvætt í umsókn vegna mögulegar opnunar rafskútuleigu á Egilsstöðum og leggur til að gerður verði samningur um málið sem tekinn verði til afgreiðslu þegar hann liggur fyrir."
Ofsaveðri spáð á Austfjörðum á laugardag
Veðurstofan varar við óveðri með miklu hvassvirði og snjókomu sem gengur yfir austanvert landið frá því á morgun föstudag fram á laugardag.Bæjarfulltrúar deildu um loftslagsbreytingar og trúmál á fundi um málefni Seyðisfjarðar
Snörp orðaskipti áttu sér stað milli bæjarfulltrúa í Múlaþingi á aukafundi bæjarstjórnar um stöðuna á Seyðisfirði í kjölfar skriðufallanna í desember. Snerran varð ekki út af vinnunni á Seyðisfirði heldur trúmálum og loftslagsmálum.Tveir í einangrun eftir landamæraskimun
Tveir einstaklingar, búsettir á Austurlandi, eru komnir í einangrun eftir að hafa greinst með Covid-19 smit við komuna til landsins.„Við ætlum að styðja við uppbygginguna“
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir einhug innan ríkisstjórnar Íslands um að styðja við uppbyggingu á Seyðisfirði í kjölfar skriðufallanna í desember. Nákvæmlega hvernig verði útfært í nánu samráði við heimafólk.Stefna á að hefja vinnslu í byrjun næstu viku
Stefnt er að því að starfsfólk geti mætt aftur til starfa í starfsstöð Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði á mánudag en þar hefur starfsemi legið niðri síðan skriður féllu á bæinn um miðjan desember. Farið verður yfir stöðuna með starfsfólki þar á morgun. Ekkert liggur fyrir um bætur á tjóni sem atvinnurekendur hafa orðið fyrir á Seyðisfirði vegna rekstrarstöðvunar vegna aurflóðanna.