Eyrarrósin, verðlaun fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður framvegis afhent á tveggja ára fresti í stað eins áður. Verðlaunaféð hækkar á sama tíma.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, skipa efstu sætin á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Eydís Ásbjörnsdóttir, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, er efst Austfirðinga í þriðja sætinu.
Áformað er að funda með eigendum húsa við Stöðvarlæk á Seyðisfirði eftir helgi. Búseta í húsunum er nú óheimil vegna skriðuhættu. Íbúar hafa lýst óánægju með lágt verðmat á húsunum sem í einhverjum tilfellum er undir fasteignamati.
Líðan skipverja af súrálsskipinu við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði heldur áfram að þróast í rétta átt. Þeir átján sem enn eru um borð fóru í sýnatöku í gær til að meta sem best stöðuna gagnvart framhaldinu. Niðurstöðu er að vænta með kvöldinu eða í fyrramálið. Gera má ráð fyrir að skipið geti siglt á ný um eða eftir helgi, hlaupi engin snurða á þráðinn.
Olíudreifing hefur óskað eftir því að Múlaþing taki til skoðunar hvort grundvöllur sé til úrbóta eða mögulegra bóta vegna tjóns sem varð á olíubirgðageymi félagsins í kjölfar uppdælingar á sandi undan lóð félagsins á Seyðisfirði sumarið 2017.
Allir þeir skipverjar af súrálsskipinu Taurus Confidence, sem greindust með Covid-19 veiruna við komu þess til Mjóeyrarhafnar 20 mars, teljast nú heilir heilsu.
Hópar frá austfirskum björgunarsveitum eru meðal þeirra sem staðið hafa vaktina við eldgosið á Reykjanesi síðustu dagana. Björgunarsveitarmenn frá Vopnafirði enduðu í 14 tíma vakt í gær eftir að ný gossprunga opnaðist.
Gul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum klukkan þrjú í dag og sendur til klukkan níu í fyrramálið. Spáð er vindhraða upp að 40 m/s í snörpum vindhviðum.
Í marsmánuði voru hundrað og fimmtíu ökumenn stöðvaðir á Austurlandi vegna of hraðs aksturs, margir þeirra innanbæjar. Tvö hundruð umferðarlagabrot voru skráð í mánuðinum.
Uppgröftur á landnámsskála að Stöð í Stöðvarfirði fékk hæsta styrkinn þegar úthlutað var úr fornminjasjóði nýverið. Merkar heimildir eru þar að koma í ljós um þróun húsagerðar í kringum landnám.
„Segja má að nýliðin loðnuvertíð hafi gengið eins og í sögu. Alls varð afli íslensku skipanna á vertíðinni 70.726 tonn en 18 íslensk skip lönduðu afla og náðu þau öll sínum kvóta.“