Hvalreki gerbreytti viðhorfi Norðmanna til mengunar sjávar
Viðhorf til rusls í hafinu hefur gerbreyst í Noregi síðan hval, fullan af plastpokum, rak þar á land fyrir sjö árum og gangskör verið gerð í hreinsun stranda. Þorri þeirra hluta sem fljóta um í sjónum virðast koma frá sjávarútvegi. Erindrekar frá norskum samtökum komu við á Stöðvarfirði síðasta sumar til að kanna stöðuna á Íslandi og tóku til hendinni þar í leiðinni.Fljótsdalshérað er enn eitt besta skógræktarsvæði landsins
Hópur starfsfólks Skógræktarinnar, nú Lands og skóga, ferðast um landið á hverju ári til að leggja út mælifleti í Landsskógarúttekt. Með henni á að kortleggja bæði ræktaða og villta skóga. Slíkar upplýsingar nýtast meðal annars við að áætla kolefnisbindingu landsins. Verkefnið fagnar í ár 20 ára afmæli sínu.Myndun meirihluta í Fjarðabyggð á lokametrunum
Línur eru orðnar nokkur skýrar í viðræðum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Ekki er þó enn komið að undirskriftinni.Oftast skýringar fyrir hendi þegar ókunnugt fólk nálgast börn
Lögreglan á Austurlandi telur ekki ástæðu til að halda áfram skoðun á atviki þar sem barni var boðið upp í bíl nýverið. Oftast liggja gildar skýringar að baki atvikum þótt rétt sé að láta lögreglu vita.Grunnskólanemendur á Borgarfirði krefjast betra leiksvæðis
Það ekki ýkja algengt að grunnskólanemendur taki sig til og sendi áskorun til ráðandi afla í fámennum bæjum eða þorpum. Það gerðu þó eldri nemendur í grunnskólanum á Borgarfirði eystri nýverið sem vilja stórbætt leiksvæði við skólann sinn.
Málefnasamningur tilbúinn í Fjarðabyggð
Viðræðum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um myndun nýs meirihluta í Fjarðabyggð er lokið. Málefnasamningur verður lagður fyrir flokksfélög í kvöld og, ef þau gefa samþykki sitt, undirritaður á morgun.Nýr búsetukjarni mun stórbæta þjónustu við fatlaða í Fjarðabyggð
Skrifað hefur verið undir samstarfssamning Fjarðabyggðar annars vegar og fyrirtækisins R101 ehf. um byggingu sérstaks búsetukjarna fyrir fatlaða einstaklinga.
Enn á huldu hvaða hlutverki gamla kirkjan á Djúpavogi skal gegna
Köll hafa verið eftir því um nokkurra ára skeið að ákvörðun verði tekin um hvaða starfsemi skuli vera í gömlu kirkjunni á Djúpavogi í framtíðinni. Enn liggur það ekki fyrir og á meðan er ekki hægt að vinna að neinum endurbótum innandyra.
Á eftir að ræða betur við RARIK um fjarvarmaveituna á Seyðisfirði
Sveitarstjóri Múlaþings segir að enn sé í gangi undirbúningsvinna áður en sveitarfélagið geti tekið við fjarvarmaveitukerfi RARIK á Seyðisfirði. Hann segir að meðgjöf þurfi að fylgja veitunni. RARIK hefur tilkynnt að það ætli að hætta rekstrinum í ár.Rannsókn flugslyssins í Sauðahlíðum gengur hægt
Opinber rannsókn á tildrögum flugslyssins í Sauðahlíðum síðastliðinn júlí þar sem þrír létu lífið gengur hægt fyrir sig hjá Rannsóknarnefnd flugslysa (RNFS). Ólíklegt er að hugsanleg orsök eða orsakir verði ljósar fyrr en með lokaskýrslu síðla á næsta ári.
Gengið verður inn um glænýtt anddyri í Fjarðarborg í sumar
Endurbætur á hálfrar aldar gömlu félagsheimili Borgfirðinga, Fjarðarborg, ganga vel að sögn umsjónarmanns framkvæmdanna. Lokið verður við nýtt anddyri hússins að mestu auk stórs hluta efri hæðar hússins áður en sumarið gengur í garð.