Kristján Þór Júlíusson alþingismaður mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í kosningunum 25. apríl. Talningu í prófkjöri flokksins er nú lokið. Á kjörskrá voru 3.949. Atkvæði greiddu 2.041 og er það 51,7% kosningaþátttaka. Auðir og ógildir seðlar voru 41.
Tryggvi Þór Herbertsson er í öðru sæti listans og Arnbjörg Sveinsdóttir í því þriðja.Tíu buðu sig fram í prófkjörinu en kosið var um sex efstu sætin.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í NA-kjördæmi hefst í fyrramálið klukkan 09. Talið verður á sunnudag og verða tölur væntanlega birtar að áliðnu kvöldi þess dags. Tíu eru í framboði og gefur Kristján Þór Júlíusson einn kost á sér í fyrsta sæti. Þrjú sækjast eftir öðru sætinu; Arnbjörg Sveinsdóttir, Soffía Lárusdóttir og Tryggvi Þór Herbertsson.
Samráðsfundur um flokkun slóða innan marka Vatnajökulsþjóðgarðs á Snæfellsöræfum, verður haldinn í Gistihúsinu Egilsstöðum 13. mars kl. 13:00. Fundurinn er öllum opinn.
Örn Þorleifsson í Húsey skrifar: Mér dettur svolítið í hug þegar ég sit hér með kaffibollann fyrir framan mig inni í eldhúsi í birtingu og horfi á Hlíðarfjöllin og Hellisheiðina, þar sem ekki sér í dökkan díl í bröttustu hamrabeltunum eftir um tíu daga úrkomu hér niðri. Ef ég hugsa til sama tíma árið 1966 man ég að þá vorum við á jarðýtum og snjóbílum að ferðast yfir Fagradal í slóð. Oft var notalegt að stoppa aðeins og tylla sér ofan á toppinn á símastaur og reykja eina túrbó-camel.
Úrslitaviðureign Útsvars, bikarkeppnin í blaki, Gettu betur og Idol-Stjörnuleit eru meðal helstu viðburða sem Austfirðingum standa til boða um helgina.
Austfirskir skólar frumsýna nú hver á fætur öðrum leikrit undir merkjum Þjóðleiks. Leikhópurinn Lopi á Höfn og Leikfélagið Djúpið í Verkmenntaskóla Austurlands hafa þegar frumsýnt sín verk. Annað kvöld frumsýna grunnskólar Eskifjarðar og Borgarfjarðar eystra og Seyðfirðingar á laugardag. Þrettán hópar alls munu sýna frumsamin verk þriggja höfunda; þeirra Bjarna Jónssonar (Ísvélin), Sigtryggs Magnasonar (Eftir lífið) og Þórdísar E. Þorvaldsdóttur Bachmann (Dúkkulísa). Hóparnir sýna svo verkin á mikilli leiklistarhátíð á Egilsstöðum í áliðnum apríl.
Ragnar Þór Ingólfsson skrifar um lífeyrissjóði: Nú er mikið í umræðunni að erlendar eignir sjóðanna séu traustar og vel tryggar í hinum ýmsu fjárfestingasjóðum hingað og þangað um heiminn. Þá hafa þeir sem fjárfesta ævisparnaði fólks helst einir á orði, þessa meintu gæfu og verðmæta sem þær eignir bera. Þegar innleysa á sparnaðinn tala þeir hins vegar um hversu erfiðlega gangi að losa þessar eignir vegna “markaðsaðstæðna” því lítið fáist fyrir þessar ,,mjög svo verðmætu” eignir við núverandi ástand því seljanleiki á mörkuðum sé lítill sem enginn.
Að vanda kemur Austurglugginn þeim til hjálpar sem hafa ekki hugmynd um hvað þeir ætla að hafa í matinn um helgina og birtir bestu eldhúsleyndarmál matgæðinga blaðsins á vefnum. Uppskriftir að þessu sinni koma frá Birnu Dagbjörtu Þorláksdóttur. Hún var alin upp í Grímsey þar sem svartfugl var og er oft á borðum og býður okkur upp á hátíðarútgáfu af fuglinum.
Rauði krossinn efnir til námskeiðs í fjöldahjálp á laugardag. Er það ætlað fólki sem áhuga hefur á að taka þátt í verkefnum Rauða kross Íslands í skipulagi almannavarna. Námskeiðið verður haldið í húsnæði Rauða krossins að Miðási 1-5 á Egilsstöðum 21. mars kl. 08 til 16 og er þátttakendum að kostnaðarlausu.