Brenna og flugeldar á Eskifirði: Myndir
Brennur voru haldnar á flestum stærri byggðarkjörnum Austurlands þetta árið.
Brennur voru haldnar á flestum stærri byggðarkjörnum Austurlands þetta árið.
Síðastliðinn miðvikudag, 28. desember, voru tónleikar í Vegahúsinu undir yfirskriftinni "Rokkum heima um jólin". Er þetta hluti af árlegri tónleikaröð Vegahússins og var að venju mikið fjör.
Alcoa Fjarðaál er meðal fimmtán fyrirtækja sem tekið hafa áskorun Geðhjálpar um að syngja jólalag og framleiða myndband því til stuðnings. Álbandið sér um lag Alcoa sem er í rokkaðri kantinum.
Listahátíð ungs fólks á Seyðisfirði, LungA, var haldin með miklum glæsibrag í ár líkt og þau síðustu. Hátíðinni lauk á miklum útitónleikum þar sem fram komu meðal annars Gus Gus með gestum úr Hjaltalín, Sin Fang, Reptile & Retard frá Danmörku, Mammút og Berndsen. Undirbúningur fyrir hátíðina 2012 er þegar hafinn en annað kvöld verður áramótapartý í Herðubreið til styrktar hátíðinni. Agl.is fangaði stemminguna á lokatónleikunum í sumar.
Hinir árlegu tónleikar Jólafriður voru haldnir í Kirkju- og menningarmiðstöð Austurlands sunnudagskvöldið 18. desember.
Bandaríkjamaðurinn Chris Shaddock hefur búið á Íslandi undanfarin sex ár. Hann býr á Fáskrúðsfirði og er giftur íslenskri konu. Þar áður gegndi hann herþjónustu í Írak sem tók verulega á.
Tónlistarhátíðin Bræðslan var sem fyrr meðal hápunkta sumarsins á Austurlandi. Þar komu að þessu sinni fram hljómsveitin Vax, Ylja, Svavar Knúfur, Írinn Glen Hansard, Hjálmar og Jónas Sigurðsson með Ritvélum framtíðarinnar. Agl.is fangaði brot af því besta á tónleikunum.
Stuttmyndin Sailcloth, sem Eskfirðingurinn Elfar Aðalsteinsson er aðalmaðurinn á bakvið, er meðal tíu mynda sem koma til greina í flokki bestu stuttmyndanna á Óskarsverðlaununum.
Elfar Aðalsteinsson, fyrrverandi forstjóri Eskju, kann vel við sig í Lundúnum þar sem hann spreytir sig á kvikmyndagerð. Nýjasta stuttmynd hans hefur fengið lofsamlega dóma. Aðalpersóna hennar byggir á fósturföður Elfars, Aðalsteini Jónssyni.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.