Chögma: Þakklát fyrir að hafa komist langt á stuttum tíma
Hljómsveitin Chögma úr Fjarðabyggð lenti í þriðja sæti Músíktilrauna í ár auk þess að fá viðurkenningu fyrir besta trommuleikarann. Sveitin spilar framsækinn metal sem er þversumman af þeim áhrifum sem meðlimir hennar verða fyrir.Yfir 40 viðburðir á Hammond hátíð ársins á Djúpavogi
Ekkert skal fullyrt enda enginn tekið það sérstaklega saman en góðar líkur eru á að Hammondhátíð Djúpavogs 2024 verði stærsta og fjölbreyttasta hátíðin nokkru sinni. Hún hefst óformlega á morgun þó aðaldagskráin sé um komandi helgi.
Óvenju margir Austfirðingar skráðir í Fjallagönguna um helgina
Eins og verið hefur síðustu árin mun síðasti leggur skíðagöngumótaraðar Skíðasambands Íslands, Íslandsgöngunni, fara fram á Fjarðarheiði á laugardaginn kemur undir heitinu Fjallagangan. Austfirskir keppendur jafnan ekki verið algengir í aðalgöngu mótsins en óvenju margir hafa skráð sig til leiks í 15 km skemmtigöngunni.
Hæfileikakeppni í heimi án olíu
Listaakademía Verkmenntaskóla Austurlands frumsýnir um helgina nýtt leikverk sem hlotið hefur heitið „Hæfileikarnir.“ Með því vaknar leiklistarstarfsemi í skólanum aftur úr dvala en síðast var sett upp verk þar árið 2019.Beituskúrinn í Neskaupstað fær drjúga andlitslyftingu
Hinn þekkti samkomustaður Beituskúrinn í Neskaupstað er að taka miklum breytingum til hins betra og það starf þegar komið vel á veg. Í sumar geta gestir notið stærra og fallegra útisvæðis við staðinn auk þess sem veitingahúsið sjálft fær upplyftingu. Nýja útlitið er hannað af heimamanninum Ólafíu Zoëga.
Ljósmyndirnar skapa frábæran grunn að umræðum
Simon Chang er gestur Fiskisúpu/Ljósmyndasósu á Seyðisfirði í kvöld. Það er röð viðburða þar sem áhugafólk um ljósmyndum hittist og ræðir saman um tækni og málefni. Hún markar einnig upphaf Ljósmyndadaga á Seyðisfirði.Leikskólabörn á Austurlandi syngja til heiðurs Prins Póló á sama tíma í dag
Tveir allsérstakir viðburðir eiga sér stað í dag og á morgun þegar leikskólabörn í flestum austfirskum leikskólum munu saman heiðra minningu tónlistarmannsins Prins Póló með söng og skemmtun.