Fjarðabyggð í fallsæti
Fjarðabyggð er komin í fallsæti í 1. deild karla eftir ósigur gegn ÍA um helgina. Leiknir virðist ætla að fylgja Dalvík/Reyni í úrslitakeppni þriðju deildar.
Fjarðabyggð er komin í fallsæti í 1. deild karla eftir ósigur gegn ÍA um helgina. Leiknir virðist ætla að fylgja Dalvík/Reyni í úrslitakeppni þriðju deildar.
Golfmótið Austurland open verður haldið á Ekkjufellsvelli laugardaginn 17. júlí. Að þessu sinni er það haldið í samstarfi við Flugfélag Íslands.
Fjölnir sigraði í dag Fjarðabyggð í 1. deild karla í knattspyrnu 0-1 á Eskifjarðarvelli. Sigurmarkið kom tveimur mínútum fyrir leikslok. Þjálfari Fjarðabyggðar segja gestina úr Grafarvoginum hafa verið heppnari.
Reyðfirðingar eiga sinn fulltrúa í Frakklandshjólreiðunum, Tour de France. Sá heitir Edvald Boasson Hagen og er reyndar norskur. Hann er talinn einn efnilegasti hjólreiðamaður veraldar um þessar mundir. Ættingjar hans hér heima fylgjast með sínum manni.
Tveir knattspyrnuleikir voru flautaðir af á Austfjörðum í gærkvöldi vegna veðurs.
Fjarðabyggð og Þór gerðu í kvöld 1-1 jafntefli á Eskifjarðarvelli. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Tvö rauð spjöld bættust við á Fjarðabyggðarliðið í leikslok.
Þriðja umferðin í Íslandsmótinu í torfæru fer fram í Mýnesgrús á Fljótsdalshéraði í dag. Fjórir austfirskir keppendur eru skráðir til leiks.
Högni Helgason segir fagn sitt, eftir að hafa skorað sigurmark Hattar gegn Víði í kvöld, hafa verið tileinkað samherja hans sem varð fyrir því óláni að puttabrjóta sig.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.