"Skelfileg martröð" á Egilsstöðum
Leiknismenn buðu upp á laglegan Breiðholtsbúgí þegar þeir unnu öruggan sigur á lélegum Hattarmönnum í körfuknattleik á Egilsstöðum í kvöld. Það er skemmst frá því að segja að heimamenn voru skrefi á eftir gestunum allan leikinn og þrátt fyrir athyglisverðar tilraunir til að snúa gjörtöpuðum leik sér í hag á síðustu mínútu leiksins var niðurstaðan sú að það er Höttur sem situr einn á botni 1. deildar. Liðið er nú stigalaust eftir þrjá leiki.