Höttur tapaði eftir tvíframlengdan leik

ImageÁrmann vann í dag Hött 69-67 í 1. deild karla í körfuknattleik í Laugardalshöll. Úrslitin réðust eftir tvær framlengingar þar sem Ármenningar björguðu sér tvisvar fyrir horn, þar af í fyrra skiptið með flautukörfu.

Lesa meira

Haukur Ingvar og Heimir þjálfa Fjarðabyggð

ImageHeimir Þorsteinsson og Haukur Ingvar Sigurbergsson þjálfa karlalið Fjarðabyggðar í knattspyrnu. Páll Guðlaugsson heldur ekki áfram með liðið sem féll úr fyrstu deild í haust. Útlit er fyrir að markvörðurinn Srdjan Rajkovic yfirgefi félagið.

 

Lesa meira

Fyrsta mótið á nýjum strandblakvelli

Image Fyrsta mótið á nýjum strandblakvelli í Neskaupstað var haldið á laugardag. Sandurinn í völlinn kom alla leið frá Póllandi. Sama dag spilaði kvennalið félagsins sinn fyrsta deildarleik í vetur.

 

Lesa meira

Halda jólabingó í september

Nemendafélag Menntaskólans á Egilsstöðum stendur í kvöld fyrir atburði sem þau kalla "Jólabingó" á hátíðarsal skólans. Fátítt er að slíkir atburðir séu haldnir í september. "Við erum bara að skáka öðrum með að vera fyrr á ferðinni," segir Jóhann Atli Hafliðason, stjórnarmaður í NME.

 

Fjarðabyggð á enn möguleika

fjolnir_kff_0071_web.jpgFjarðabyggð á enn möguleika á að halda sér í 1 deild karla en liðið er ekki í fallsæti fyrir lokaumferðina. Brugðið getur til beggja vona.

 

Lesa meira

KFF: Góð þróun að fá yngri mann í þjálfunina

Image Heimir Þorsteinsson, sem þjálfar karlalið Fjarðabyggðar í annarri deildinni í knattspyrnu á næstu leiktíð með Hauki Ingvari Sigurbergssyni, segir það góða þróun að fá yngri mann inn í þjálfunina. Hann reiknar ekki með miklum breytingum á leikmannahópnum þótt alltaf færi sig einhverjir leikmenn um set þegar lið fari á milli deilda.

 

Lesa meira

Heimsmeistaramótsfarar sviknir um hjól

ImageÍslenska landsliðið í mótorkrossi var svikið um hjól sem því hafði verið lofað til notkunar í heimsmeistarakeppninni í Bandaríkjunum. Egilsstaðabúinn Hjálmar Jónsson er einn liðsmanna.

 

Lesa meira

Að duga eða drepast fyrir Fjarðabyggð

fjolnir_kff_0064_web.jpgKnattspyrnufélag Fjarðabyggðar leikur á morgun sinn seinasta heimaleik í sumar í 1. deild karla. Liðið verður að vinna Leikni Reykjavík til að eiga möguleika á að halda sér í deildinni.

 

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar