Brjálæðið á Eistnaflugi 2011: Myndir og myndband
Þungarokkshátíðin Eistnaflug fór fram í Neskaupstað um seinustu helgi. Að vanda var hátíðin vel sótt en hún hefur vaxið jafnt og þétt frá því hún var fyrst haldin árið 2005. Á meðal stærstu nafnanna á hátíðinni í ár voru Eiríkur Hauksson, Ham, Atrum, Skálöld og Momentum.Syndaaflausn á Breiðdalsvík
Snjólfur Gíslason þúsundþjalasmiður á Breiðdalsvík, útgerðamaður og fyrrum handrukkari er að færa út kvíarnar.Stútfull dagskrá Ormsteitis
Ormsteiti stendur sem hæst þessa dagana en hátíðin er árleg á Héraði. Hátíðin er haldin víðvegar um héraðið og er samstarfsverkefni Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps og fjölmargra fyrirtækja sem gera það kleift að halda hátíðina í þeirri mynd sem hún er í dag.
Griðasamningur hreindýrs: Stranglega bannað að veiða lukkudýr UÍA
Hreindýrið Sprettur Sporlangi, lukkudýr UÍA, undirritaði í morgun samning við Umhverfisstofnun sem gefur honum grið frá hreindýraveiðum. Hreindýraveiðitímabilið hófst á miðnætti og stendur fram í miðjan september. Sprettur hlakkar mikið til að taka þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ, sem haldið verður á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina og telur samninginn mikilvægan til að tryggja öryggi sitt.
Hernámsdagurinn á Reyðarfirði
Hernámsins á Reyðarfirði árið 1940 er minnst í dag og á morgun með mikilli dagskrá.
Héldu tombólu til styrktar börnum í Sómalíu
Eskfirðingarnir Sóley Arna Friðriksdóttir og Eygló Auðbjörnsdóttir stóðu nýverið fyrir tombólu til styrktar sveltandi börnum í Sómalíu. Vinkonurnar, sem eru tólf ára gamlar, söfnuðu 9.100 krónum. Þær segjast mjög ánægðar með að geta lagt sín lóð á vogarskálarnar til að bjarga mannslífum í Sómalíu.Rekur einokunarverslun á Breiðdalsvík
Hjónin Kristín Ársælsdóttir fyrrverandi hótelstjóri og Njáll Torfason fjöllistamaður reka einu dagvöruverslunina á Breiðdalsvík. Auk þess sem Njáll hefur mörg járn í eldinum að vanda.
Myndir: Ég lifi í draumi
Tónlistarveislan „Ég lifi í draumi" með lögum Björgvins Halldórssonar var nýverið sýnd í Valaskjálf á Egilsstöðum. Agl.is leit við á sýningu og fangaði bestu augnablikin.