Fagna 100 ára kosningarétti kvenna með hreinum kvennafundi í bæjarstjórn
Aðeins konur munu sitja fyrsta fund bæjarstjórnar Fjarðabyggðar þegar hún kemur saman á ný eftir sumarleyfi. Þá munu konur einnig skipa meirihluta fastra bæjarfulltrúa.Sigrún Blöndal: Ekki ætti að gefa afslátt af skipulagsvaldi sveitarfélaga
Sigrún Blöndal, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs og formaður Sambands Sveitarfélaga á Austurlandi, hefur áhyggjur af tilhneigingu stjórnvalda til að auka ráðherraræði og þrengja að að skipulagsvaldi sveitarfélaga. Þetta segir hún vegna frumvarps Höskulds Þórhallssonar, sem felur í sér að skipulag alþjóðaflugvallanna í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum heyri undir innanríkisráðherra.„Borgaryfirvöld hafa sýnt landsbyggðinni fingurinn“
Gunnar Jónsson, formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs, segir framgöngu borgaryfirvalda í Reykjavík ástæðu þess að bæjarstjórn Fljótdalshéraðs styðji hugmyndir um að skipulag Reykjavíkurflugvallar og annarra alþjóðaflugvalla á Íslandi verði flutt til innanríkisráðherra. Hann segir borgaryfirvöld í Reykjavíkurborg ítrekað hafa „sýnt landsbyggðinni fingurinn“ með gjörðum sínum.Minna en kílómetri eftir af göngunum
Nú fer að draga nær lokum gangagraftrar, en jarðgangamenn eru nú komnir nokkuð áleiðis á síðasta kílómetrann. Alls hafa nú verið grafnir 6.690 metrar af þeim 7.566 metrum jarðganga í bergi milli Eskifjarðar og Norðfjarðar.Elsa Guðný nýr safnstjóri Minjasafnsins
Elsa Guðný Björgvinsdóttir hefur verið ráðin safnstjóri Minjasafns Austurlands. Hún tekur við starfinu í haust af Unni Birnu Karlsdóttur.Snjór í byggð á Austurlandi
Íbúar á Héraði og víðar á Austurlandi vöknuðu upp við fannhvíta jörð í morgun, þrátt fyrir að komið sé fram í júní. Útlit er fyrir áframhaldandi kulda og úrkomu fram eftir vikunni.Seyðisfjörður og Fljótsdalshérað studdu breytingar á skipulagi flugvalla
Austfirsku sveitarfélögin Seyðisfjarðarkaupstaður og Fljótsdalshérað styðja hugmyndir um að skipulag Reykjavíkurflugvallar og annarra alþjóðaflugvalla á Íslandi yrði flutt til innanríkisráðherra. Tekist hefur verið á um málið á Alþingi í morgun.Nýstúdent opnar bílaþvottastöð í Fellabæ
Hinn 18 ára gamli Kolbeinn Ísak Hilmarsson opnaði á dögunum bílaþvottastöðina Bílaþvottahúsið í Fellabæ. Kolbeinn er nýútskrifaður úr Menntaskólanum á Egilsstöðum, þar sem hann lauk námi á þremur árum.