Yfirborð Hálslóns náði í 625 metra hæð yfir sjávarmál á föstudag og er lónið þar með komið á yfirfall. Lónið hefur aldrei farið svo seint á yfirfall síðan það var fyrst fyllt síðsumars 2008.
María Hjálmarsdóttir, verkefnisstjóri alþjóðaflugs hjá Austurbrú, segir væntanlegt áætlunarflug milli Egilsstaða og London Gatwick afrakstur stanslausar vinnu undanfarið ár. Hún segir það gæfu að flugið sé á vegum ferðaskrifstofu sem skili sér í þróun Austurlands sem áfangastaðar.
Hæstiréttur snéri í dag við úrskurði héraðsdóms í máli Landsvirkjunar gegn Þjóðskrá og Fljótsdalshéraði um að Þjóðskrá ætti ekki að skrá og meta vatnsréttindi við Jökulsá á Dal inn í fasteignamat. Dómurinn gæti haft umtalsvert fordæmisgildi og falið í sér auknar tekjur fyrir sveitarfélögin Fljótsdalshrepp og Fljótsdalshérað.
Launafl á Reyðafirði og MultiTask í Neskaupstað eru nýir endurseljendur fyrir Símann á Austurlandi. Þá er Rafey á Egilsstöðum nýr verktaki fyrir Símann.
Verkmenntaskóli Austurlands í Neskaupstað fékk hæstu einkunn austfirskra ríkisstofnana í úttekt SFR á stofnun ársins. Menntaskólinn á Egilsstöðum er meðal hástökkvara ársins á landsvísu. Úttektin byggist einkum á ánægju starfsmanna með stofnun sína.
Byrjað var að steypa gólfið á nýja brú yfir Eskifjarðará klukkan sjö í morgun og unnið verður við það fram á kvöld. Þetta er stærsta einstaka steypan í gerð nýrra Norðfjarðarganga.
Björn Óli Hauksson, forstjóri ISAVIA, segir að Egilsstaðaflugvöllur og starfsmenn hans geti leikandi tekið á móti áætluðu flugi milli Egilsstaða og Lundúna næsta sumar. Flogið verður tvisvar í viku.
Ferðaskrifstofan Discover the World kynnti í dag formlega áætlun sína um að fljúga tvisvar í viku á milli Egilsstaða og Gatwick flugvallar við London næsta sumar. Um leið var undirritað samkomulag við ferðaþjónustufyrirtækin Tanna Travel og Fjallasýn um þjónustu við ferðamenn og sölu á flugmiðum innanlands.
Lögreglan á Egilsstöðum var tvisvar kölluð út í gær vegna bílvelta. Vörubíll fór út af veginum um Fagradal og jeppabifreið á Háreksstaðaleið. Ökumaður hennar slasaðist nokkuð.
Það var Arngrímur Viðar Ásgeirsson, ferðaþjónustuaðili á Borgarfirði, sem fyrstur stakk þeirri hugmynd að eiganda bresku ferðaskrifstofunnar Discover the World að koma upp beinu flugi á milli Egilsstaða og Englands. Hann á von að flugið lengi ferðamannatímann á Austurlandi.
Tanni Travel á Eskifirði og Fjallasýn á Húsavík skrifuðu í gær undir samkomulag við bresku ferðaskrifstofuna Discover the World um að annast sölu í beint flug skrifstofunnar til Lundúna á Íslandi og þjónusta ferðalanga sem hingað koma. Framkvæmdastjóri Tanna Travel segir að fara þurfi vandlega yfir framtíðaráform fyrirtækisins í ljósi hins nýja verkefnis.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segir beint flug á milli Egilsstaða og Lundúna nauðsynlegt ekki bara fyrir Austurland heldur landið allt. Fjölga þurfi gáttum inn í landið til að hægt sé að taka á móti auknum fjölda ferðamanna.