Tvær bílveltur í gær

nesfrakt velta fagradal 20151009 0001 webLögreglan á Egilsstöðum var tvisvar kölluð út í gær vegna bílvelta. Vörubíll fór út af veginum um Fagradal og jeppabifreið á Háreksstaðaleið. Ökumaður hennar slasaðist nokkuð.

Flutningabíll frá Nesfrakt fór út af skammt frá sæluhúsinu á Fagradal um klukkan hálf níu í gærmorgun og valt eina veltu. Lúmsk hálka var á veginum. Ökumaður meiddist lítið.

Lögreglan var aftur kölluð út klukkan hálf fjögur í gær vegna bílveltu á Háreksstaðaleið. Ökumaður hennar var nokkuð slasaður og var fyrst fluttur með sjúkrabíl í Egilsstaði en þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur.

Þetta voru verkefni lögreglunnar í gær en lögregluliðið var undirmannað eystra í gær eins og víðast annars staðar á landinu.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.