Verkfall sjómanna hefði vond áhrif á Eskju
Verkfall sjómanna gæti tafið uppbyggingu nýs frystihúss Eskju á Eskifirði. Samninganefndir funda fram eftir degi í von um sættir áður en verkfall hefst klukkan ellefu í kvöld.
Franska uppbyggingin hefur gert okkur enn stoltari af Fáskrúðsfirði
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar afhenti nýverið forsvarsmönnum Minjaverndar viðurkenningar fyrir gott samstarf við íbúa, fyrirtæki og stofnanir í sveitarfélaginu við uppbyggingu frönsku húsanna á Fáskrúðsfirði. Uppbyggingin skipti máli fyrir bæði sjálfsálit íbúa og atvinnu í bænum.
Stolnum bíl skilað aftur á sama stað
Lögreglan á Austurlandi hefur ekki enn upplýsingar um ferðir bíls sem hvarf af bílastæðinu við flugvöllinn á Egilsstöðum á sunnudag. Ökumenn eru minntir á að fara með gát nú þegar hálka er tekin að myndast á vegum.
Flóttabörn daga uppi hjá sveitarfélögum því úrræði Útlendingastofnunar eru sprungin
Lögfræðingur Barnaverndarstofu telur að ný útlendingalög feli í sér mikla réttarbót sem koma hingað til lands. Núverandi úrræði dugi ekki lengur. Barnaverndaryfirvöld sveitarfélaganna bera ábyrgð meðan hælisumsókn er metin.
Orkuskipti á Austurlandi: Tæknin orðin ódýrari fyrr en fólk þorði að vona
Hjá Austurbrú er að komast á laggirnar verkefni um orkuskipti á Austurlandi þar sem horft er á uppbyggingu innviða fyrir rafmagnsbíla, nýja orkugjafa í sjávarútvegi og betri nýtingu á orku til húshitunar. Verkefnisstjóri segir tæknina vera fyrr komna á viðráðanlegt verð en reiknað var með.Kindurnar tregar heim á góðu hausti
Austfirska sauðfjárbændur vantar enn töluver í safn sitt þrátt fyrir göngur í haust. Kindurnar virðast tregar heim þar sem haustið hefur verið sérstaklega gott.
Bæjarstjóra Seyðisfjarðar afhent áskorun kennara um betri kjör
Vilhjálmur Jónsson tók í gær við undirskriftalista kennara við Seyðisfjarðarskóla og áskorun um betri kjör. Kennarar hafa lýst yfir miklum áhyggjum af nýliðun í stéttinni.