Bæjarstjóra Seyðisfjarðar afhent áskorun kennara um betri kjör

Vilhjálmur Jónsson tók í gær við undirskriftalista kennara við Seyðisfjarðarskóla og áskorun um betri kjör. Kennarar hafa lýst yfir miklum áhyggjum af nýliðun í stéttinni.


Kennarar um allt land hafa síðustu daga safnað undirskriftum og afhent. Í áskoruninni er þess krafist að sveitarfélögin bregðist „án tafar við því alvarlega ástandi sem skapast hefur í skólakerfinu vegna hættulegra og rangra áherslna í kjarastefnu sveitarfélaga gagnvart grunnskólakennurum.“

Gagnrýnt er að samningar kennara hafi verið lausir mánuðum saman án þess að sveitarfélögin hafi vilja til að bjóða betri kjör .

„Margir fulltrúar sveitarfélaga hafa gengist við því á síðustu árum að laun kennara séu allt of lág. Hin lágu laun hafa verið réttlætt með því að sveitarfélögin hafi ekki efni á betri kjörum.

Með því er í raun verið að segja að sveitarfélögin séu ófær um að reka þá grunnþjónustu sem þau hafa tekið að sér fyrir íbúa þeirra. Slíkt gengur auðvitað ekki til lengdar. Við aðstæður sem þessar mun grunnþjónustan bíða skaða eða eyðileggjast með öllu.

Árum saman hafa kennarar þurft að bæta fyrir getuleysi sveitarfélaga við að reka grunnskólann með ásættanlegum hætti. Nú er hinsvegar orðið ljóst að kennarar geta ekki lengur komið í veg fyrir að skólakerfið lendi í stórhættu. Nýir kennarar fást ekki til starfa, eldri kennarar heltast úr lestinni eða hverfa til annarra starfa – og þeir sem eftir standa munu ekki anna öllum þeim brýnu verkefnum sem fylgja grunnskólastarfi í landinu.

Kennarar hafa því aðeins tvo kosti. Að yfirgefa skólana og afhjúpa þannig endanlega þá skammsýni og hyskni sem einkennir störf sveitarfélaga á þessu sviði – eða stíga fram, draga sveitarfélögin til ábyrgðar fyrir stöðunni sem upp er kominn og krefjast viðbragða.“

Vilhjálmur tekur við listanum frá þeim Kolbrúnu Erlu Pétursdóttur, Svövu Lárusdóttir og Unni Óskarsdóttur.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.