Hafa smalað tæplega 100 kindum í Vopnafirði síðan í haust
Smalar í Vopnafirði hafa komið tæplega 100 kindum niður af heiðunum þar í kring síðan í lok október. Smali segir ekki gott að vita af fénu upp á fjöllum í vetrarhörkum.Ekki hægt að nota hluta olíubirgðastöðvar vegna jarðsigs
Ekki er hægt að nota hluta af olíubirgðastöð Skeljungs á Eskifirði vegna jarðsigs. Starfsleyfi fyrir slíkar stöðvar á Seyðisfirði eru gefin út til takmarkaðs tíma þar sem skipulag skortir.Varð að hætta í vinnunni vegna dagvistunarleysis
„Við komum Esjari syni okkar hvergi að. Ég fór í 40% vinnu sem ég gat svo ekki sinnt vegna barnsins, þannig að maðurinn minn réði sig í þrjár vinnur til þess að vega upp mitt tekjutap. Þar af leiðandi er hann allt að 12 tíma fjarri heimilinu á dag og hittir son sinn rétt áður en hann fer að sofa á kvöldin,“ segir Linda Sæberg, íbúi á Egilsstöðum um úrræðaleysi í dagvistunarmálum í bænum.Fjórar fjölskyldur á flótta á leið til Fjarðabyggðar
Fjórar flóttamannafjölskyldur eru væntanlegar til Fjarðabyggðar um miðjan næsta mánuð. Félagsmálastjóri segir samfélagið vel í stakk búið að taka á móti fólkinu og spennt fyrir að kynnast því.Tæplega 200 kindum smalað eftir áramót
Hátt í tvö hundruð kindum hefur verið smalað saman í Fljótsdalshreppi það sem af er þessu ári. Fjallskilastjóri segir að breyta verði skipulagi á fjallskilum þegar fjáreigendur sinna ekki ákalli um að koma fé sínu heim.Heppinn að fara ekki lengra en á minnisvarðann
Einn meiddist lítillega þegar bifreið með fjóra innanborðs skautaði út úr beygjunni við Neðri-Staf á leiðinni til Seyðisfjarðar í gær. Bifreiðin endaði á minnisvarðanum sem þar stendur og geta farþegarnir prísað sig sæla með að hafa hafnað þar.Tveir hættulegustu vegkaflar landsins á Austurlandi
Suðurfjarðarvegur milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur og vegurinn frá Fellabæ að gatnamótunum við Úlfsstaði á Völlum eru þeir kaflar í íslenska vegakerfinu þar sem flest alvarleg slys verða miðað við umferðarþunga. Sérfræðingur í umferðaröryggi segir ástand austfirska vegakerfisins slæmt.„Notó vonandi kominn til að vera“
Nytjamarkaðurinn Notó á Djúpavogi er starfræktur til styrktar barna- og unglingastarfi Djúpavogshrepps. Markaðurinn er nýr af nálinni en hefur farið mjög vel af stað.
Hefði viljað greiða meira til samfélagsins
Sigfús Vilhjálmsson á Brekku í Mjóafirði er sá útvegsmaður sem borgar lægst veiðigjöld á landinu fiskveiðiárið 2016-2017. Síldarvinnslan í næsta firði greiðir mest austfirskra útgerða og þriðju hæstu gjöldin á landsvísu.Vatnið í Neskaupstað í lagi
Ekki er lengur nauðsynlegt að sjóða vatn í Neskaupsstað. Talið er að yfirborðsvatn hafi borist í vatnsból í Fannardal í miklum rigningum á föstudag.Mikilvægt að stíga út fyrir landamörkin
„Þetta er ótrúlega spennandi, ég vissi alveg að þetta væri það, en ekki svona,“ segir Berglind Häsler, ferðaþjónustubóndi í Havarí á Karlsstöðum í Berufirði. Havarí er eitt tíu fyrirtækja sem tekur þátt í Startup Tourism í ár.