Ferðamenn í vanda á bílaleigubílum á sumardekkjum
Ferðamenn á ferð um Austurland síðustu daga hafa lent í vandræðum, eða þurft að fresta för sinni, vegna þess að bílaleigubílar sem þeir eru á eru á sumardekkjum. Hætta á sektum virðist draga kjarkinn úr sumum bílaleigum við að koma flota sínum á nagladekk í tæka tíð.Fyrstu íbúðarhúsin á Seyðisfirði í tólf ár í undirbúningi
Undirbúningur er hafinn að byggingu tveggja nýrra íbúðarhúsa á Seyðisfirði en tólf ár eru liðin síðan þar var síðast byggt íbúðarhús. Bæjaryfirvöld skoða að auki byggingu íbúðakjarna fyrir 55 ára og eldri með þá von að glæða húsnæðismarkaðinn á staðnum lífi.Sjálfbærni í Hallormstaðaskóla
Námið í Hallormstaðaskóla hefur tekið miklum breytingum og leggur núna mikla áherlslu á sjálfbærni. Á morgun, þann 23. október heldur skólinn einmitt upp á Sjálfbærnidaginn og í tilefni dagsins verður haldið opið málþing.
Fólksbíll fór útaf á Fjarðarheiði
Ökumaður réð ekki við veðrið á Fjarðarheiði sem olli því að bíllinn með sex erlendum ferðamönnum fór útaf en engin slasaðist.
Ljósastýring á Lagarfljótsbrú
Umferð um brúna yfir Lagarfljót milli Egilsstaða og Fellabæjar verður næstu mánuði stýrt með ljósum á meðan gert verður við brúna.„Hluti af lýðræðinu að hver og einn myndi sína skoðun“
Djúpavogsskóli ætlar ekki að birta niðurstöður skuggakosninga um sameiningu sveitarfélaga, sem fram fór í skólanum nýverið, strax líkt og aðrir skólar hafa gert í Fljótsdalshéraði, á Seyðisfirði og í Menntaskólanum á Egilstöðum.