VA þarf að keppa aftur gegn MÍ
RÚV hefur ákveðið að viðureign Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólans á Ísafirði í annarri umferð spurningakeppninnar Gettu betur verði endurtekin vegna tæknilegra mistaka. VA hafði betur er liðin mættust í gærkvöldi og taldi sig hafa tryggt sér sæti í sjónvarpshluta keppninnar.Eldur í ruslatunnum í Neskaupstað
Snarræði slökkviliðsmanna varð til þess að eldur sem kom upp í tveimur ruslatunnum sem stóðu við verslunarhúsnæði í miðbæ Neskaupstaðar náði ekki að læsa sig í húsið. Þar virðast aðeins hafa orðið minniháttar skemmdir.Sex sóttu um starf lögreglustjóra
Sex umsóknir bárust um starf lögreglustjórans á Austurlandi en umsóknarfrestur rann út á föstudag. Nýr lögreglustjóri verður skipaður frá og með 1. mars.Aldrei fleiri Austfirðingar á Mannamótum
Yfir 30 austfirskir ferðaþjónustuaðilar kynna vörur sínar og þjónustu á sýningunni Mannamótum sem haldin er í Kórnum í Kópavogi í dag. Verkefnisstjóri segir hug í Austfirðingum eftir gott ár.Snjóflóðin áminning um að hraða verði vinnu við varnarmannvirki
Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar segir ánægjulegt að sjá hversu vel snjóflóðavarnamannvirki hafi reynst þegar tvö stór snjóflóð féllu á Flateyri í gærkvöldi. Á sama tíma séu þau áminning um að ekki verið haldið aftur af fjármagni úr Ofanflóðasjóði og sem fyrst lokið við að verja hættusvæði um allt land.Þjóðgarðsfundi frestað á ný vegna bilaðrar flugvélar
Kynningarfundi umhverfis- og auðlindaráðherra um fyrirhugaðan Hálendisþjóðgarð, sem halda átti á Egilsstöðum í kvöld, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Bilun í vél Air Iceland Connect veldur því að ráðherrann kemst ekki á staðinn.Gul viðvörun á Austurlandi í kvöld
Veðurstofa Íslands hefur sett á gula viðvörun fyrir Austurland en hún tekur gildi í kvöld. Búast má við að fjallvegir verða illfæri og truflunum á samgöngum í kvöld þegar þjónusta hættir. Einnig er varað við því að það gæti orðið nærri stórrstreymt vegna lágs loftþrýstings.