Kvennalið Þróttar í blaki hefur lokið keppnistímabili sínu eftir að hafa fallið út gegn HK í undanúrslitum úrvalsdeildarkvenna. Karlaliðið lék sinn fyrsta leik í úrslitakeppninni og keppni í neðri deildum Íslandsmóts karla í knattspyrnu hófst um helgina.
Tæplega 15 þúsund notendur nýttu sér Loftbrú, niðurgreiðslur ríkisins á innanlandsflugi, fyrsta hálfa árið sem fyrirkomulagið var í gildi. Niðurgreiðslur fargjalda kostuðu ríkissjóð um 100 milljónir króna.
Hæsti húshitunarkostnaður á landinu er á Reyðarfirði, Vopnafirði og í Neskaupstað eða um 191 þúsund kr. á ári. Í þessum hóp eru einnig Grundarfjörður, Hólmavík og Vík í Mýrdal. Þessi kostnaður er nær þrefaldur á við lægsta kostnaðinn á landinu sem er á bilinu 60 til 70 þúsund kr.
Hlutafjárútboð Síldarvinnslunnar hófst kl. 10 í morgun og stendur yfir fram til kl. 16.00 á miðvikudag. Mikill áhugi er á þessu útboði. Í boði eru tæplega 448 milljónir hluta í félaginu en heimild er til að stækka útboðið um 51 milljón hluta.
Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 27,3 milljörðum króna í apríl sem er nær 54% aukning í krónum talið miðað við apríl í fyrra. Það er aðallega loðnuafurðir sem standa undir þessari aukningu á verðmætinu.
Gerð hefur verið breyting á rekstrarleyfi Fiskeldis Austfjarða fyrir eldislax í Berufirði. Breytingin byggir á nýju áhættumati fyrir frjóan lax í firðinum.
Stórt stökk varð í vikunni í hlutfalli bólusettra Austfirðinga gegn Covid-19 veirunni, enda vart við öðru að búast þegar rúm 10% allra íbúa fengu bóluefni.
Höttur á enn möguleika á að forðast fall úr úrvalsdeild karla í körfuknattleik eftir 100-104 sigur á Haukum í gærkvöldi. Örlögin ráðast í síðasta leik tímabilsins á mánudag. Lið Þróttar spila í úrslitakeppni Íslandsmótsins í blaki um helgina og keppni hefst í neðri deildunum í knattspyrnu.
Stjórn Síldarvinnslunnar (SVN) hefur samþykkt að afhenda starfsmönnum félagsins hlut í félaginu í fyrirhuguðu hlutafjárútboði. Um er að ræða 0.19% af heildarhlutafé og er verðmæti þess áætlað 180 milljónir kr.