Í sumar verður hægt að skora rækilega á sjálfan sig og taka þátt í nýrri þriggja þrauta keppni á Austurlandi, Álkarlinum, sem er haldin af UÍA í samstarfi við Alcoa Fjarðaál.
Fjarðabyggð tekur á móti úrvalsdeildarliði Vals í 16 liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu í Fjarðabyggðarhöllinni klukkan 18:00 í dag. Þjálfari Fjarðabyggðar segir gaman að fá jafn sterkt lið og Val í heimsókn en heimamenn eru tilbúnir að koma gestum sínum óþægilega á óvart.
Skipuleggjendur Fjórðungsmóts Austurlands í hestaíþróttum kynntu í vikunni merki mótsins sem listamaðurinn Pétur Behrens hannaði. Úrtökumót standa yfir fyrir mótið sem búist er við að um eitt þúsund gestir sæki.
Austfirsku liðin áttu leiki um helgina í 1., 2. og 3. deild karla og gengu viðureignirnar misvel hjá liðunum eins og gengur og gerist. Þá voru austfirsku liðin í C-riðli 1. deildar kvenna einnig í eldlínunni.
Höttur hefur komist að samkomulagi við Mirko Stefán Virijevic um að hann leiki með liðinu í Dominos-deildinni á næstu leiktíð. Mirko lék á síðasta tímabili með Njarðvík og þar á undan KFÍ. Í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeild Hattar segir að Mirko eigi eftir að koma með mikla reynslu og gæði í ungt Hattarliðið.
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari sigurliðs Hattar í fyrstu deild karla í körfuknattleik var valinn þjálfari ársins í deildinni á uppskeruhátíð Körfuknattleikssambands Íslands sem fram fór fyrir skemmstu.
Höfundur: Gísli Már Magnússon/Gunnar Gunnarsson • Skrifað: .
Fjarðabyggð er úr leik í bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir 0-4 tap gegn úrvalsdeildarliði Vals í Fjarðabyggðarhöllinni í gær. Höttur og Fjarðabyggð gerðu markalaust jafntefli í fyrstu deild kvenna.
Austfirsku knattspyrnuliðin höfðu í nógu að snúast um nýliðna helgi. Fjarðabyggð, Höttur og Einherji unnu sína leiki, en Huginn og Leiknir mættust á Fellavelli og gerðu jafntefli í mjög kaflaskiptum leik.