Leki í kerskála Fjarðaáls
Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði var aftengt raforkukerfinu í kvöld eftir að leki kom upp í kerskála. Upplýsingafulltrúi segir starfsmenn ekki hafa verið í neinni hættu.Byrja að steypa Borgarfjarðarveginn: Gaman að sjá langþráð vegagerðarskilti – Myndir
Íbúar á Borgarfirði eystra söfnuðust saman í Njarðvíkurskriðum í gær og byrjuðu að steypa veginn þar um. Gjörningurinn var til að minna á að enn eru 28 km ómalbikaðir milli Borgarfjarðar og næsta þéttbýlisstaðar, Egilsstaða.Fáskrúðsfirðingar vilja fá að kjósa um fiskeldi
Nýrri stjórn íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar hefur verið falið að reyna að koma á kosningu meðal íbúa til að fá fram hug þeirra til fiskeldis í firðinum. Íbúar hafa miklar áhyggjur af mengun í firðinum frá eldinu en talsmenn eldisfyrirtækjanna segja rannsóknir sýna að hana þurfi ekki að óttast.GG Þjónusta: Úr tveimur starfsmönnum í sextán á rúmu ári
GG Þjónusta ehf. var meðal þeirra sem fengu hæstu stöku styrkina úr Uppbyggingarsjóði Austurlands þegar úthlutað var úr sjóðnum í síðustu viku. Fyrirtækið sérhæfir sig í þrifaþjónustu fyrir matvælafyrirtæki og hefur vaxið hratt á skömmum tíma.Ökumaðurinn bjargaðist er bíll fór í höfnina á Fáskrúðsfirði
Karlmaður var fluttur til aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað í morgun eftir að bíll sem hann ók fór út af hafnarbakkanum á Fáskrúðsfirði.Skóladagvist fjórða lægst í Fjarðabyggð
Fjarðabyggð stendur nokkuð vel að vígi miðað við önnur sveitarfélög þegar gjaldskrár varðandi skóladagvistun, hressingu og hádegismat í grunnskólum eru skoðaðar, en verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám milli áranna 2017 og 2018.„Ég hélt hann kæmi ekki til baka aftur“
„Hann var bara búinn að sitja inni hjá okkur í tvær til þrjár mínútur þegar hann datt út,“ segir Reyðfirðingurinn Þórir Stefánsson, sem var annar þeirra sem tilnefndur var skyndihjálparmaður árins 2017 eftir að hann kom bróður sínum til bjargar eftir hjartaáfall.„Kyndiofninn mun borga brúsann“
„Það eru virkilega spennandi tímar framundan,“ segir Bjarki M. Jónsson, eigandi Skógarafurða í Fljótsdal, en fyrirtækið fyrir skemmstu fyrsta sérsmíðaða timburflutningabíl landsins, ásamt vínekrudráttarvél.Þrýsta á að fá byggðakvóta til Mjóafjarðar
Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð róa nú að því öllum árum að tryggja að áfram verði úthlutað byggðakvóta til Mjóafjarðar. Bæjarráð telur hættu á byggðaröskum fái Mjóifjörður ekki kvóta. Engu af hinum almenna byggðakvóta á yfirstandandi fiskveiðiári var úthlutað til staðarins.„Sjómaður á sumrin og bakpokaferðalangur á veturna“
„Ég hef ekki farið í neitt útkall ennþá, sem betur fer, og vonandi verður það bara þannig áfram,“ segir Steinunn Káradóttir, sem gekk nýverið til liðs við slökkviliðið á Borgarfirði eystri og er hún þar með fyrsta konan sem starfar sem slökkviliðsmaður hjá Brunavörnum Austurlands.