Talsverðar breytingar fram undan á sveitarstjórnum
Undirbúningur framboðsmála fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á Austurlandi eru skammt á veg komnar en kosið verður laugardaginn 26. maí. Útlit er fyrir talsverða endurnýjun, fimmtungur fulltrúa segist ákveðinn í að hætta.Játaði fjárdrátt frá starfsmannafélagi
Fyrrverandi formaður starfsmannafélags VHE á Reyðarfirði hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að draga sér fé úr sjóðum félagsins. Sú upphæð sem var til skoðunar lækkaði við meðferð málsins.Þörf á tveimur stuðningsfjölskyldu fyrir hverja fjölskyldu á flótta
Deildir Rauða krossins í Fjarðabyggð undirbúa þessa dagana að taka á móti fjórum flóttamannafjölskyldum sem væntanlegar eru til sveitarfélagsins upp úr miðjun febrúar. Sjálfboðaliðar Rauða krossins hjálpa flóttamönnunum út í samfélagið.Engar Íslandstökur í lokaseríu Fortitude
Engar Íslandstökur verða í þriðju og síðustu þáttaröðinni af bresku spennuþáttunum Fortitude sem teknir verða upp á næstunni. Útitökur fyrir fyrstu þáttaraðirnar tvær ásamt fleiri atriðum voru teknar upp á Austfjörðum.Tuttugu sóttu um starf verkefnastjóra Háskólaseturs
Tuttugu einstaklingar sóttu um stöðu verkefnastjóra Háskólaseturs Austfjarða (HáAust) en umsóknarfrestur rann út í byrjun síðustu viku.„Austurland er vagga uppsjávarvinnslu á Íslandi“
„Það má ekki gleyma því að Austurland er vagga uppsjávarvinnslu á Íslandi og hér eru mörg önnur fyrirtæki í uppsjávarvinnslu,“ segir Páll Snorrason framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Eskju um nýlegt hátækni frystihús á Eskifirði. Að austan á N4 leit við í Eskju fyrir jól.Slæm fjallskil áhyggjuefni
Dýraeftirlitsmaður segir það áhyggjuefni að grípa þurfi til aðgerða til að ná fjölda fjár af fjöllum í janúar. Matvælastofnun fylgist með gangi mála en hefur takmarkaðar heimildir til að grípa inn í.„Að reita arfa og forgangsraða í lífinu“
„Mig langar til þess að fá fólk til að hugsa hvernig það vill hafa sína forgangsröðun í daglegu lífi,“ segir Rakel Rán Sigurbjörnsdóttir, fjölskyldumeðferðarfræðingur, sem verður með opinn fyrirlestur í Nesskóla á Norðfirði í kvöld.Telja göng undir Mjóafjarðarheiði ekki leysa neinn vanda
Bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar telur hugmyndir um göng undir Mjóafjarðarheiði og þaðan til suðurs yfir í Fannardal í Norðfirði ekki vera þá samgöngulausn sem bæjarbúar þurfi á að halda.Er skattaumhverfi á Íslandi alger frumskógur?
„Ýmsar breytingar hafa orðið á skattalögunum á síðastliðnu ári, þar með talið í tengslum við ferðaþjónustu,“ segir Magnús Jónsson, hluthafi hjá KPMG á austurlandi, sem stendur fyrir árlegum skattafróðleik á Egilsstöðum á morgun.