Reynslan úr skimuninni dýrmæt fyrir sýnatökur úr farþegum Norrænu
Yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) segir starfsfólk stofnunarinnar vera vel í stakk búið til að takast á við sýnatökur úr farþegum Norrænu í lok júní. Vinnan gæti þó hægt á annarri þjónustu stofnunarinnar þá daga sem ferjan er í höfn. Ekki er aðstaða til að greina sýnin eystra. Því þarf að koma þeim í áætlunarflug.Nafnakosning samhliða forsetakosningum
Undirbúningsstjórn sameiningar fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi hefur samþykkt að kosið verði milli 6 nafna á nýtt sveitarfélag samhliða forsetakosningum sem fram munu fara þann 27. júní. Allir íbúar sveitarfélaganna fjögurra, 16 ára og eldri, munu hafa rétt til að taka þátt í kosningunum.Drógu fulllestaðan línubát til hafnar
Hafdís, skip björgunarsveitarinnar Geisla á Fáskrúðsfirði, kom til hafnar á Stöðvarfirði á áttunda tímanum í morgun með línubát í eftirdragi. Báturinn varð vélarvana í nótt skammt austur af Skrúð.