Fagna miklum stuðningi við kjarasamning
Forstjóri Alcoa Fjarðaáls kveðst ánægður með mikinn stuðning starfsmanna við nýjan kjarasamning sem samþykktur var í gær.Skólastofur þrefalt dýrari en áætlað var
Útlit er fyrir að kostnaður við skólastofur sem keyptar voru síðasta haust til að bregðast við húsnæðisvanda Seyðisfjarðarskóla verði tæplega þrefalt meiri en upphaflegar áætlanir gert var ráð fyrir. Ekki hefur enn verið hægt að taka stofurnar í notkun þar sem fjármagn skortir til að útbúa þær samkvæmt reglum.Búlgaría í brenndepli á listahátíð barna
Búlgaría verður í brennidepli á morgun, miðvikudag, á Fjölþjóðlegri listahátíð barna sem nú stendur yfir á Vopnafirði. Hátíðin hófst í síðustu viku þegar þjóðhátíðardegi Gvæjana var fagnað í leikskólanum Brekkubæ.Austfirsk skip í öllum topp fimm sætunum
Austfirsk skip eru í öllum topp fimm sætunum yfir aflahæstu uppsjávarskipin á fyrstu tveimur mánuðum ársins.Flugfélög velja sjálf hvert þau fara í eldgosi
Ekki eru taldar líkur á að Keflavíkurvöllur yrði lokaður lengi ef eldgos kemur upp á Reykjanesi. Flugrekstraraðilar velja sjálfir hvert þeir beina vélum sínum ef völlurinn lokast. Egilsstaðaflugvöllur er einn þriggja valla hérlendis sem eru til vara fyrir Keflavík.Nýr rafstrengur lagður yfir Hofsá
Verktakar á vegum Rarik grófu í nótt nýjan rafstreng yfir Hofsá í Vopnafirði. Eldri strengur gaf sig á laugardag og var illa farinn.Kolmunninn streymir til Fáskrúðsfjarðar
Norska skipið Harvest kom til Fáskrúðsfjarðar í morgun af miðunum vestan við Írland með um 1600 tonn af kolmunna. Miðin eru í um 800 mílna (eða rúmlega 1.200 km) fjarlægð frá Fáskrúðsfirði.Rafmagnslaust á Reyðarfjarðarströnd í dag
Rafmagnslaust verður á Reyðarfjarðarströnd frá Berunesi að Vattarnesi í dag frá kl 13:00 til kl 16:00 vegna viðgerðar á línu.
Allar líkur á að SÚN muni auka hlut sinn í SVN
Allar líkur eru á því að Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN) muni auka hlut sinn í Síldarvinnslunni (SVN) þegar SVN verður skráð í Kauphöllina í vor. Slíkt er í samræmi við núgildandi stefni SÚN.