„Það hefur ekkert tilboð komið enn. Það er greinilega allt gaddfreðið í þessum málum vegna COVID,“ segir Karl Guðmundsson framkvæmdastjóri Papeyjaferða. Allar eigur félagsins voru auglýstar til sölu fyrir rétt tæpum mánuði síðan.
Múlaþing á kost á nær 100 milljónum kr. í ljósleiðarastyrki í ár. Þessir styrkir eru veittir í gegnum átakið Ísland ljóstengt 2021. Fjarðabyggð á einnig kost á styrk upp á 17 milljónir kr. í ár í gegnum átakið.
Þau Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja saka Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um útúrsnúninga.
Söfnun fyrir Tækniminjasafnið á Karolina Fund lýkur formlega á mánudaginn. Í dag hafði söfnunin náð tæpum 7.800 evrum eða tæpum 1,2 milljónum kr. Þetta er aðeins 31% af þeirri upphæð sem stefnt er að eða 25.000 evrum.
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður frá Akureyri, hefur lýst því yfir að hann sækist eftir fyrsta sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi þingkosningar. Oddviti listans, Kristján Þór Júlíusson, gaf það út um helgina að hann ætli að hætta.
Söfnunin á Karolina Fund fyrir Tækniminjasafnið á Seyðisfirði tók mikinn kipp um helgina. Fjárhæðin sem safnast hefur tvöfaldaðist frá föstudegi og þar til í morgun.
Bæði Starfsgreinasambandið (SGS) og AFL Starfsgreinafélag (AFL) krefjast þess að uppsagnir hjá starfsfólki hjúkrunarheimla í Fjarðabyggð og Vestmannaeyjum verði tafarlaust afturkallaðar.