Sýnt frá útför Vilhjálms í Valaskjálf
Aðstandendur Vilhjálms Einarssonar hafa sent frá sér tilkynningu um að sýnt verði frá útför hans í Valaskjálf á Egilsstöðum. Útförin verður gerð frá Hallgrímskirkju í Reykjavík föstudaginn 10. janúar kl. 15.Stöðuleyfi vinnubúðanna á Reyðarfirði framlengt
Fjarðabyggð hefur samþykkt erindi Alcoa Fjarðaáls um að framlengja stöðuleyfi starfsmannabúða sem reistar voru við byggingu álversins til næsta sumars.Landsréttur sýknaði Fljótsdalshérað af öllum kröfum VBS eignasafns
Landsréttur hefur sýknað sveitarfélagið Fljótsdalshérað af öllum kröfum VBS eignasafns ehf. en einkahlutafélagið taldi sveitarfélagið hafa gerst brotlegt með að hafna beiðni þess um framlengingu á lóðasamningi um lóð á Egilsstöðum sem er óbyggð. VBS keypti leiguréttinn að lóðinni á uppboði árið 2007.Skýrir stéttskipting námsárangur frekar en búseta?
Þjóðfélagsleg staða virðist skýra betur árangur íslenskra nemenda í PISA-könnunum heldur en búseta þeirra samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn. Nemendur á landsbyggðinni, þar með talið Austurlands, hafa komið töluvert lakar út úr könnununum heldur en þeir sem búa í landsbyggðinni.Brýnt að veita strax fjármagni til loðnuleitar
Bæjarráð Fjarðabyggðar krefst þess að aukið fjármagn verði veitt til loðnuleitar. Bæjarstjórinn segir mikilvægt að efla þekkingu á tegundinni sem sé mikilvæg, ekki bara fyrir sveitarfélagið heldur þjóðarbúið allt.„Góðir leikmenn að koma upp úr yngri flokkastarfinu okkar"
14 leikmenn skrifuðu undir samninga við Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar (KFF) þann 22. desember síðastliðinn. Tólf skrifuðu undir samning vegna meistaraflokks karla og tvær stúlkur er spila með sameiginlegu liði KFF, Hattar og Leiknis. Níu skrifuðu undir sína fyrstu samninga.
120 milljónir í snjómokstur á Fjarðarheiði og Fagradal
Tæpum 120 milljónum var samanlagt varið í snjómokstur og hálkuvarnir á Fjarðarheiði og Fagradal á árinu 2018. Árið var í hópi þeirra snjóþyngstu á undanförnum áratug.Helmingi fleiri farartæki í fyrstu ferð Norrænu
Helmingi fleiri farartæki komu í fyrstu ferð Norrænu þetta árið heldur en í fyrra. Ferjan kom fyrr en áætlað var til að forðast óveður. Ekki hafa enn borist tíðindi af tjóni eða óhöppum í umdæmi lögreglunnar á Austurlandi.Fundi um Hálendisþjóðgarð frestað
Vegna versnandi veðurspár hefur verið ákveðið að fresta kynningarfundi umhverfis- og auðlindaráðherra um frumvarp hans um Hálendisþjóðgarð sem halda átti á Egilsstöðum annað kvöld.Umhverfisráðherra austur til að kynna Hálendisþjóðgarð
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mun halda opinn fund á Egilsstöðum á miðvikudag til að kynna tillögur um stofnun Hálendisþjóðgarðs. Tillögur um þjóðgarðinn virðast vekja blendin viðbrögð meðal Austfirðinga.Átak til að fá leikskólakennara til starfa skilaði árangri
Öll börn sem eru á biðlista eftir leikskólaplássi á Seyðisfirði eiga að komast inn í skólana í byrjun árs. Átaksverkefni sem bærinn réðist í seint á nýliðnu ári skilaði árangri.